1
00:00:02,000 --> 00:00:07,000
Downloaded from
YTS.MX

2
00:00:02,640 --> 00:00:04,400
<i>Ein þrjátíu.</i>

3
00:00:08,000 --> 00:00:13,000
Official YIFY movies site:
YTS.MX

4
00:00:12,120 --> 00:00:14,120
<i>Ein þrjátíu og ein, Mo.</i>

5
00:00:16,280 --> 00:00:20,680
HM 2019 Í DOHA
Í FRJÁLSUM ÍÞRÓTTUM

6
00:00:22,280 --> 00:00:26,320
Furðulegast er
hvað gerðist í Doha.

7
00:00:27,560 --> 00:00:30,560
Alberto Salazar,
öflugasti þjálfari heims

8
00:00:30,720 --> 00:00:34,720
og Nike, voldugasta fyrirtæki
í heimi, bak við hann.

9
00:00:34,880 --> 00:00:37,840
Hann er á hátindi ferilsins.

10
00:00:38,000 --> 00:00:40,720
-Íþróttamenn hans skara fram úr.
<i>-Sjáið tímann.</i>

11
00:00:40,880 --> 00:00:46,000
<i>Nýtt Bandaríkjamet.</i>
<i>Konstanze Klosterhalfen er þriðja.</i>

12
00:00:46,160 --> 00:00:51,480
<i>Þetta eru merkileg tímamót.</i>
<i>Þetta er nýtt meistaramótsmet.</i>

13
00:00:51,640 --> 00:00:55,400
<i>Sagan var skrifuð í Doha í kvöld.</i>

14
00:00:55,560 --> 00:00:58,040
Allt í einu
er honum sparkað af mótinu.

15
00:00:58,200 --> 00:00:59,680
Réttindin hrifsuð af honum.

16
00:00:59,840 --> 00:01:03,680
<i>Eitt stærsta nafn frjálsíþrótta</i>
<i>í fréttum kvöldsins.</i>

17
00:01:03,840 --> 00:01:08,120
<i>Alberto Salazar,</i>
<i>einn þekktasti þjálfari heims,</i>

18
00:01:08,280 --> 00:01:10,920
<i>var sendur heim</i>
<i>af heimsmeistaramótinu.</i>

19
00:01:11,080 --> 00:01:14,560
<i>Bandaríska lyfjasambandið</i>
<i>komst að því að Salazar</i>

20
00:01:14,720 --> 00:01:18,440
<i>hefði greitt</i>
<i>fyrir ólöglegri lyfjanotkun.</i>

21
00:01:18,600 --> 00:01:22,360
Ekkert af íþróttafólki hans
virtist hafa brotið lyfjareglur.

22
00:01:22,520 --> 00:01:25,320
Þetta var dularfullt.
Vorum við ekki í Doha?

23
00:01:25,480 --> 00:01:28,760
Ég vissi ekki
hvaðan á mig stóð veðrið.

24
00:01:29,800 --> 00:01:32,520
Skilaboðin voru skýr
til alls áhugafólks

25
00:01:32,680 --> 00:01:35,160
um frjálsar íþróttir,
langhlaup og lyfjanotkun.

26
00:01:36,960 --> 00:01:40,800
Þetta tengdist líka Nike-risanum.

27
00:01:40,960 --> 00:01:46,920
Það kom mér á óvart
hve þétt Nike stóð með Alberto.

28
00:01:47,080 --> 00:01:49,320
-Sástu aldrei neitt?
-Nei.

29
00:01:49,480 --> 00:01:53,040
Hvernig gat hann svindlað
en ekki íþróttafólkið hans?

30
00:01:53,920 --> 00:01:59,640
Þeir sem gefa sig alla í íþróttina
eru einmitt ekki svindlarar.

31
00:01:59,800 --> 00:02:04,000
Það eru hinir sem svindla.
Hann er ekki maður skyndilausna.

32
00:02:05,960 --> 00:02:11,160
Spurningin í þessu lyfjamáli er:
Gerði hann þetta?

33
00:02:12,200 --> 00:02:15,840
Af hverju er Nike tilbúið
að veðja á hann?

34
00:02:16,000 --> 00:02:18,680
Við þurfum
að svara þeirri spurningu.

35
00:02:18,840 --> 00:02:23,400
MAÐURINN SEM NIKE VEÐJAÐI Á

36
00:02:30,000 --> 00:02:31,400
Ég er Amby Burfoot.

37
00:02:33,120 --> 00:02:36,280
Ég vann Boston-maraþonið
árið 1968.

38
00:02:36,440 --> 00:02:41,400
Ég ritstýrði <i>Runner's World</i>
í um 20 ár.

39
00:02:42,480 --> 00:02:46,560
Þegar ég byrjaði að hlaupa,
um miðjan sjöunda áratuginn,

40
00:02:46,720 --> 00:02:51,480
voru hlauparar ekki beinlínis
hluti af íþróttaheiminum.

41
00:02:51,640 --> 00:02:56,400
Það var litið niður á okkur,
horuð viðrini sem hlupu á nærfötum.

42
00:02:58,400 --> 00:03:02,560
Fólk henti bjórflöskum í okkur
og hrópaði út um gluggana:

43
00:03:02,720 --> 00:03:04,280
"Farið heim, skokkarar."

44
00:03:04,440 --> 00:03:06,560
Okkur var illa við skokkara-heitið.

45
00:03:08,920 --> 00:03:13,720
Viðhorfið var ekki
að það þjónaði tilgangi að hlaupa

46
00:03:13,880 --> 00:03:20,240
eða langhlaup væri keppnisíþrótt
og jafnframt heilbrigður lífsstíll.

47
00:03:20,400 --> 00:03:22,520
FRANK SHORTER,
BANDARÍKJUNUM

48
00:03:22,680 --> 00:03:27,960
Shorter vann Ólympíumaraþonið
árið 1972 og fyrir okkur,

49
00:03:28,120 --> 00:03:30,720
sem fylgdumst með
var það stórkostlegt.

50
00:03:30,880 --> 00:03:36,000
Síðan fór Bill Rodgers
að vinna mikið í Bandaríkjunum.

51
00:03:36,160 --> 00:03:40,600
Lífsglaður furðufugl,
samt vingjarnlegur smástrákur

52
00:03:40,760 --> 00:03:43,800
sem jók á vinsældir íþróttarinnar.

53
00:03:43,960 --> 00:03:46,600
1978

54
00:03:46,760 --> 00:03:48,200
Bandaríkjamönnum gekk vel.

55
00:03:48,360 --> 00:03:54,560
Meðal þeirra voru Bill, Frank,
Joan Benoit og Patti Catalano.

56
00:03:54,720 --> 00:03:58,920
Á áttunda áratugnum
náðu hlaup fótfestu í Bandaríkjunum

57
00:03:59,080 --> 00:04:01,320
og það var upphafið að Nike.

58
00:04:01,480 --> 00:04:07,000
EUGENE Í OREGON
ÞAR SEM NIKE VARÐ TIL

59
00:04:07,160 --> 00:04:12,080
Upphafið að Nike tengist hlaupum.

60
00:04:12,240 --> 00:04:13,720
BILL BOWERMAN
STOFNANDI NIKE

61
00:04:13,880 --> 00:04:19,520
Vöfflujárn var fyrirmyndin
að fyrstu sólunum á hlaupaskóna.

62
00:04:19,680 --> 00:04:21,960
Síðan hefur þróunin haldið áfram.

63
00:04:23,720 --> 00:04:30,240
Steve Prefontaine, Phil Knight,
Jeff Johnson og Geoff Hollister.

64
00:04:30,400 --> 00:04:33,960
Þeir eru allir með hlaupagen
í blóðinu.

65
00:04:34,120 --> 00:04:36,160
BOB WILLIAMS
OREGON-HÁSKÓLA '63-'67

66
00:04:36,320 --> 00:04:40,560
Ég er Bob Williams og hljóp
fyrir Oregon-háskóla í fjögur ár.

67
00:04:40,720 --> 00:04:46,040
Ég man þegar Bill og Phil Knight
kynntu þessa skó til sögunnar.

68
00:04:46,200 --> 00:04:47,960
"Hlaupið í þeim," sagði hann.

69
00:04:48,120 --> 00:04:51,360
Sem við gerðum. Þeir voru frábærir,
léttir og sveigjanlegir.

70
00:04:52,960 --> 00:04:55,400
Þetta var nýsköpun hjá Bill og Phil.

71
00:04:55,560 --> 00:04:57,600
Nike varð til í höndum þeirra

72
00:04:57,760 --> 00:05:01,480
og þeir þróuðu skó í sameiningu.

73
00:05:01,640 --> 00:05:02,960
P. THOMSON VANN HJÁ NIKE

74
00:05:03,120 --> 00:05:07,720
Ég byrjaði hjá Nike 1973
þegar ég kom til Eugene í Oregon.

75
00:05:07,880 --> 00:05:09,640
NIKE

76
00:05:09,800 --> 00:05:12,880
Nike var nýstárlegt fyrirtæki.

77
00:05:13,040 --> 00:05:19,040
Þarfir hlaupara og íþróttamanna
voru settar á oddinn frá upphafi.

78
00:05:19,200 --> 00:05:24,360
Við vildum þjóna íþróttamönnum
og gera bestu íþróttavörurnar.

79
00:05:25,920 --> 00:05:29,480
Fyrirtækið var nefnt
eftir grísku sigurgyðjunni Níke.

80
00:05:29,640 --> 00:05:31,800
SKÓRNIR OKKAR
BERA NAFN KONU

81
00:05:31,960 --> 00:05:35,160
Frjálsíþróttir skipa mikilvægan sess
hjá Nike.

82
00:05:35,320 --> 00:05:36,720
VIÐ ÞYRLUM UPP RYKI.

83
00:05:36,880 --> 00:05:40,080
Þeir tóku hugmyndina og vörumerkið

84
00:05:40,240 --> 00:05:45,200
og bjuggu til heildarhugmynd
í samvinnu við afburða íþróttamenn.

85
00:05:45,360 --> 00:05:50,920
Þeim tókst að sýna umheiminum
að Nike var einstakt vörumerki.

86
00:05:53,160 --> 00:05:59,800
<i>... og þeir gefa í.</i>
<i>Perfontaine sigrar á 3:59.2.</i>

87
00:05:59,960 --> 00:06:02,520
<i>Prefontaine setur nýtt heimsmet.</i>

88
00:06:02,680 --> 00:06:04,000
STEVE PREFONTAINE

89
00:06:04,160 --> 00:06:07,640
EUGENE Í OREGON

90
00:06:07,800 --> 00:06:09,840
Þetta er steinn Pres,

91
00:06:10,000 --> 00:06:16,240
þar sem Steve Prefontaine
hlaut ótímabæran dauðdaga.

92
00:06:16,400 --> 00:06:20,720
Sportbílnum hans hvolfdi
eftir að hann ók á steininn.

93
00:06:24,000 --> 00:06:30,480
Þessi helgireitur tengist Eugene
og Nike.

94
00:06:30,640 --> 00:06:36,360
Enn koma nýir starfsmenn Nike
á þennan helgireit,

95
00:06:36,520 --> 00:06:41,840
votta Pre minningu sína
og minnast afreka hans.

96
00:06:42,960 --> 00:06:45,040
<i>Þá kemur Prefontaine.</i>

97
00:06:45,200 --> 00:06:50,120
<i>Prefontaine lætur ekki að sér hæða,</i>
<i>hann fer fram úr og að marklínunni.</i>

98
00:06:50,280 --> 00:06:55,280
Á Ólympíuleikunum
í Munchen 1972

99
00:06:55,440 --> 00:07:00,520
var Steve Prefontaine ungur hlaupari.
Hann átti einn hring eftir

100
00:07:00,680 --> 00:07:04,800
þegar hann fór fram úr
í átt að gullmedalíunni

101
00:07:04,960 --> 00:07:07,200
með þrjá hlaupara á hælunum.

102
00:07:07,360 --> 00:07:10,720
<i>Þeir eru hlið við hlið</i>
<i>og nú hefst lokahringurinn.</i>

103
00:07:10,880 --> 00:07:13,800
Í síðustu beygjunni
fóru tveir fram úr honum

104
00:07:13,960 --> 00:07:18,520
og rétt fyrir framan marklínuna
fór sá þriðji fram úr honum.

105
00:07:18,680 --> 00:07:21,520
<i>Finn sigrar með 30 sekúndna mun</i>
<i>og Stuart fær bronsið.</i>

106
00:07:21,680 --> 00:07:24,560
<i>Prefontaine er uppgefinn</i>
<i>á síðustu metrunum.</i>

107
00:07:24,720 --> 00:07:28,240
Hann varð fjórði og kannski
má segja að hann hafi tapað

108
00:07:28,400 --> 00:07:31,680
en í raun var þetta
það sem Pre snerist um

109
00:07:31,840 --> 00:07:36,280
og það sem Nike snerist um,
að kýla bara á hlutina.

110
00:07:42,720 --> 00:07:46,800
Ef einhver var verndardýrlingur,
var það Steve Prefontaine

111
00:07:46,960 --> 00:07:49,560
sem varð fjórði
af því hann reyndi að sigra.

112
00:07:49,720 --> 00:07:52,080
KEN GOE,
ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR

113
00:07:52,240 --> 00:07:56,040
Hann hljóp ekki til að komast
á pall heldur til að vinna gull.

114
00:07:56,200 --> 00:07:58,360
Það er í anda Phils Knight og Nike.

115
00:08:00,880 --> 00:08:04,280
Ég er Alex Hutchinson, blaðamaður
og skrifa um hlaup.

116
00:08:04,440 --> 00:08:07,080
Ég skrifa fyrir <i>Outside</i>
og <i>Globe and Mail.</i>

117
00:08:10,080 --> 00:08:12,800
Ímyndin sem Nike sá
í Steve Prefontaine

118
00:08:12,960 --> 00:08:19,440
var að berjast til síðasta blóðdropa.
Prefontaine lést árið 1975.

119
00:08:19,600 --> 00:08:24,680
Þá myndaðist tómarúm
í Nike-musterinu.

120
00:08:24,840 --> 00:08:27,320
Alberto Salazar
gat fyllt það tómarúm.

121
00:08:27,480 --> 00:08:28,920
RÁSMARK
NEW YORK-BORG

122
00:08:29,080 --> 00:08:33,080
<i>Í 11. New York-maraþoninu</i>
<i>eru 16 þúsund skráðir til leiks,</i>

123
00:08:33,240 --> 00:08:36,640
<i>frá 50 fylkjum og 43 löndum.</i>

124
00:08:36,800 --> 00:08:40,680
<i>Alberto Salazar frá Eugene</i>
<i>hljóp maraþon í fyrsta sinn.</i>

125
00:08:40,840 --> 00:08:46,240
<i>Fyrir hlaupið sagði hann</i>
<i>að maraþon væri ofmetið.</i>

126
00:08:46,400 --> 00:08:51,520
Á 8. áratugnum kom Alberto Salazar
frá Boston fram á sjónarsviðið.

127
00:08:51,680 --> 00:08:55,680
Hann var í menntaskóla
og fór síðan í Oregon-háskóla.

128
00:08:55,840 --> 00:08:59,680
Hann hafði eldmóð,
var ófeiminn og sjálfumglaður.

129
00:09:01,560 --> 00:09:04,440
<i>Fyrir hlaupið sagði Alberto tvennt.</i>

130
00:09:04,600 --> 00:09:09,640
<i>Að hann myndi sigra Bill Rodgers</i>
<i>og hlaupa undir 2:10.</i>

131
00:09:09,800 --> 00:09:15,240
<i>Eftir 25 mílur leit út fyrir</i>
<i>að hann myndi slá hraðamet.</i>

132
00:09:15,400 --> 00:09:19,880
<i>Al Salazar sést hér,</i>
<i>hann gæti hlaupið undir 2:10.</i>

133
00:09:20,040 --> 00:09:25,760
<i>Ótrúlegur íþróttaárangur,</i>
<i>2:09.40, óstaðfestur tími.</i>

134
00:09:25,920 --> 00:09:31,120
<i>Al Salazar hleypur</i>
<i>New York-maraþon á 2:09.40.</i>

135
00:09:31,280 --> 00:09:35,040
Eftir menntaskóla kom hann
í New York-maraþonið og sagði:

136
00:09:35,200 --> 00:09:39,640
"Ég sigra." Hann setti heimsmet
einu eða tveimur árum síðar

137
00:09:39,800 --> 00:09:43,160
og virtist nánast ósigrandi.

138
00:09:43,320 --> 00:09:46,080
<i>-Þvílík frammistaða.</i>
<i>-Hann nær þessu.</i>

139
00:09:46,240 --> 00:09:51,680
<i>-Al Salazar. Nýtt heimsmet.</i>
<i>-Hann nær þessu.</i>

140
00:09:51,840 --> 00:09:55,640
<i>2:08.13.</i>
<i>New York-maraþonið.</i>

141
00:09:55,800 --> 00:10:01,200
Hann hljóp til sigurs.
Þannig markaðssetti Nike sig.

142
00:10:01,360 --> 00:10:04,000
Hann tók að sér hlutverk
besta hlaupara heims.

143
00:10:04,160 --> 00:10:05,960
Hann varð nýja andlit Nike.

144
00:10:06,120 --> 00:10:10,160
Hann kom fram
í fyrstu stóru auglýsingunni.

145
00:10:10,320 --> 00:10:14,480
Hann tók við hempunni
af Steve Prefontaine.

146
00:10:14,640 --> 00:10:18,720
Hann var stórstjarna. Allir mundu
eftir frábærum hlaupum hans.

147
00:10:18,880 --> 00:10:23,560
<i>Hér eru Beardsley og Salazar.</i>
<i>Mótorhjólin þurfa að víkja.</i>

148
00:10:23,720 --> 00:10:29,560
<i>Salazar hleypur lokahlutann</i>
<i>eins og sá sem ætlar að sigra.</i>

149
00:10:29,720 --> 00:10:34,320
<i>Alberto Salazar</i>
<i>vann Boston-maraþonið 1982.</i>

150
00:10:34,480 --> 00:10:37,320
Hann var þrefaldur sigurvegari
í New York.

151
00:10:37,480 --> 00:10:41,680
Hann lagði mikið á sig
og í Falmouth gekk hann fram af sér.

152
00:10:41,840 --> 00:10:45,160
Hann hljóp hratt
og var erfiður andstæðingur.

153
00:10:46,200 --> 00:10:50,480
Phil Knight var ungur, Nike nýstofnað
og Alberto aðalmaðurinn.

154
00:10:50,640 --> 00:10:53,600
Sem strákur sá ég hann vinna
New York-maraþonið,

155
00:10:53,760 --> 00:10:57,680
heyrði sögur af honum,
að Falmouth hefði gengið frá honum.

156
00:10:57,840 --> 00:11:00,440
Það var ekki hægt
að búa svona sögur til.

157
00:11:04,880 --> 00:11:06,440
Ég er Malcolm Gladwell.

158
00:11:06,600 --> 00:11:12,080
Ég er rithöfundur,
þáttastjórnandi og hlaupari.

159
00:11:12,240 --> 00:11:13,560
MALCOLM GLADWELL

160
00:11:13,720 --> 00:11:16,560
Ég hef skrifað um hlaup
og Alberto Salazar.

161
00:11:16,720 --> 00:11:19,640
Hann sýndi
bandarískum langhlaupurum

162
00:11:19,800 --> 00:11:22,240
að þeir gætu hlaupið
með stóru strákunum.

163
00:11:25,240 --> 00:11:29,240
Hann hafði ekki meðfædda hæfileika
eins og margir félaga hans.

164
00:11:29,400 --> 00:11:34,440
Hann er ekki í sama flokki
og Frank Shorter, Bill Rodgers

165
00:11:34,600 --> 00:11:39,440
eða aðrir miklir maraþonhlauparar
á áttunda áratugnum.

166
00:11:39,600 --> 00:11:43,800
Hann gat nýtt sér 98 prósent
af eiginleikum sínum

167
00:11:43,960 --> 00:11:48,120
en þeir aðeins 90 eða 95%
sem gerði hann betri.

168
00:11:50,040 --> 00:11:54,160
Enginn íþróttamaður á þessum tíma
nýtti hæfileika sína jafn vel.

169
00:11:56,040 --> 00:11:59,960
Fæst okkar geta nýtt allt
sem við búum yfir.

170
00:12:00,120 --> 00:12:04,440
Maður gefur sig ekki alfarið í hlaup
því maður gengur frá sér.

171
00:12:05,440 --> 00:12:07,480
Hann gaf sig 100% í hlaupin

172
00:12:07,640 --> 00:12:12,440
og það skilur hann frá okkur hinum.

173
00:12:14,440 --> 00:12:17,080
Einu sinni, þegar ég var ungur,

174
00:12:17,240 --> 00:12:23,400
gaf ég það sem ég taldi vera
allt sem ég átti. Það var skelfilegt,

175
00:12:23,560 --> 00:12:25,240
ég vil ekki endurupplifa það.

176
00:12:28,960 --> 00:12:31,400
Bara keppnisfólk veit
hve vont þetta er.

177
00:12:31,560 --> 00:12:36,720
Óþægindatilfinningin
lifir með manni alla tíð.

178
00:12:38,560 --> 00:12:41,040
Hann sá að hann gat farið á ystu nöf

179
00:12:41,200 --> 00:12:44,960
og að þannig yrði hann
stórkostlegur hlaupari.

180
00:12:45,120 --> 00:12:51,040
Eftir góðan árangur
í lok 8. áratugar og upphafi níunda,

181
00:12:51,200 --> 00:12:53,080
lentum við á vegg.

182
00:12:53,240 --> 00:12:57,520
Við hættum að vinna
og enginn veit hvers vegna.

183
00:12:57,680 --> 00:13:02,400
Næsta áratuginn unnu hlauparar
frá öðrum löndum maraþonin.

184
00:13:03,120 --> 00:13:04,480
DR. MICHAEL JOYNER

185
00:13:04,640 --> 00:13:07,520
Ég er Mike Joyner,
sálfræðingur og svæfingalæknir

186
00:13:07,680 --> 00:13:10,040
á Mayo-sjúkrahúsinu í Minnesota.

187
00:13:11,160 --> 00:13:13,680
Við rannsökum
takmörk mannslíkamans,

188
00:13:13,840 --> 00:13:18,440
hvar mörkin liggja
og hvað maðurinn þolir.

189
00:13:20,120 --> 00:13:24,520
Af hverju gengu Bandaríkin
í gegnum tímabil án þess

190
00:13:24,680 --> 00:13:27,200
að ná árangri í langhlaupum

191
00:13:27,360 --> 00:13:30,840
frá miðjum 9. áratugnum
fram yfir árið 2000?

192
00:13:31,000 --> 00:13:33,040
HANCOCK ASICS JOHN HANCOCK

193
00:13:33,200 --> 00:13:35,600
Þjálfunin var ekki eins stíf.

194
00:13:37,200 --> 00:13:39,600
<i>Hér koma Hussein og Ikangaa.</i>

195
00:13:39,760 --> 00:13:43,840
<i>Ibrahim Hussein hefur unnið</i>
<i>í New York og vinnur nú í Boston.</i>

196
00:13:44,000 --> 00:13:49,520
Afríkumenn komu sterkir til leiks
á 9. og 10. áratugnum.

197
00:13:49,680 --> 00:13:54,480
Kenýa-menn urðu áberandi
upp úr 1990 og unnu í Boston.

198
00:13:54,640 --> 00:13:57,880
Eftir það fjölgaði þeim auðvitað,

199
00:13:58,040 --> 00:14:03,040
þeir urðu tveir, síðan fjórir,
svo sextán og þrjátíu og tveir.

200
00:14:03,200 --> 00:14:05,400
Ég fylgdist með Boston-maraþonum

201
00:14:05,560 --> 00:14:07,800
með 20 Kenýa-mönnum
á lokaspretti.

202
00:14:07,960 --> 00:14:11,080
Það var eins og meistaramót
í Afríku, í Kenýa.

203
00:14:11,240 --> 00:14:13,320
Bandaríkjamenn eru þriðju,

204
00:14:13,480 --> 00:14:16,480
í langhlaupi,
á eftir Kenýa og Eþíópíu.

205
00:14:16,640 --> 00:14:19,560
Ég hætti um 1990 og er heppinn

206
00:14:19,720 --> 00:14:25,400
því ég var með bestu langhlaupurum
rétt áður en afríska byltingin hófst.

207
00:14:25,560 --> 00:14:30,160
Áður en þeir tóku yfir
hlaupin og frjálsu íþróttirnar.

208
00:14:30,320 --> 00:14:34,120
Ég var fjórði á Ólympíuleikunum
á 13.11 í 5.000 metrum.

209
00:14:34,280 --> 00:14:39,040
Þá var ég tíundi hraðasti hlaupari
í heimi á 13.11.

210
00:14:39,200 --> 00:14:41,760
Nú næ ég ekki einu sinni 300. sæti.

211
00:14:43,520 --> 00:14:48,240
Fólk eins og Alberto Salazar
reyndi að leysa þessa ráðgátu.

212
00:14:48,400 --> 00:14:53,200
Alberto sá enga ástæðu til annars
en Bandaríkjamenn væru fremstir.

213
00:14:53,360 --> 00:14:58,920
Alberto var aðalmaðurinn um 1980.
Hann var fremsti hlaupari í heimi.

214
00:14:59,080 --> 00:15:03,200
Hví voru langhlauparar okkar
ekki lengur inni í myndinni?

215
00:15:03,360 --> 00:15:09,440
Upp úr 2000 vildi Nike stofna félag
sem tæki yfir öll félögin

216
00:15:09,600 --> 00:15:12,200
og þjálfaði upp
bestu hlaupara í heimi.

217
00:15:12,360 --> 00:15:17,360
Hann taldi sig geta útbúið kerfi

218
00:15:17,520 --> 00:15:20,480
með þjálfunaraðferðum
og stuðningi frá Nike

219
00:15:20,640 --> 00:15:24,600
sem kæmi Bandaríkjamönnum
aftur í hóp bestu hlaupara heims,

220
00:15:24,760 --> 00:15:27,600
hérna í Oregon.

221
00:15:27,760 --> 00:15:29,560
HINN FULLKOMNI HLAUPARI

222
00:15:29,720 --> 00:15:31,720
Nike ákvað að setja saman lið

223
00:15:31,880 --> 00:15:35,720
og hver var best til þess fallinn
að mati Nike?

224
00:15:35,880 --> 00:15:38,280
Fremsti maraþonhlaupari heims

225
00:15:38,440 --> 00:15:41,360
og Nike-maður inn að beini.

226
00:15:41,520 --> 00:15:43,000
Alberto Salazar.

227
00:15:45,480 --> 00:15:50,480
Nike getur stutt Alberto
í öllu sem hann vill gera.

228
00:15:50,640 --> 00:15:54,840
Það verður niðurstaðan,
hann hefst handa upp úr 2000

229
00:15:55,000 --> 00:15:58,000
og setur á fót
Oregon-verkefni Nike.

230
00:15:59,000 --> 00:16:03,200
Með nýsköpun og hjálp vísindanna,
sáu þeir að þeir gátu

231
00:16:03,360 --> 00:16:05,720
gert frábæra áætlun,
sem þeir gerðu.

232
00:16:05,880 --> 00:16:10,680
Oregon-verkefni Nike
varð sífellt betra.

233
00:16:10,840 --> 00:16:17,120
Alberto gerði samninga við menn.
"Sjáum hve frábær þú getur orðið."

234
00:16:18,440 --> 00:16:21,840
Markmiðið er að búa til
bandaríska maraþonhlaupara.

235
00:16:22,000 --> 00:16:27,960
Að þjálfa Bandaríkjamenn
til að hlaupa eins og áður.

236
00:16:28,120 --> 00:16:31,840
Þekking á sviði vísinda
og íþróttalækninga nýtist okkur

237
00:16:32,000 --> 00:16:35,680
til að þjálfa menn í að hlaupa
jafn hratt og fyrir 20 árum.

238
00:16:35,840 --> 00:16:38,160
-Já.
-Af hverju ekki?

239
00:16:40,760 --> 00:16:45,560
Oregon-verkefni Nike
undir stjórn Albertos, var frábært.

240
00:16:45,720 --> 00:16:50,800
Þetta var einn besti hópur
íþróttamanna, ef ekki sá besti

241
00:16:50,960 --> 00:16:54,120
í sögu langhlaupa í Bandaríkjunum.

242
00:16:54,280 --> 00:16:59,040
<i>Rupp er fyrsti Bandaríkjamaðurinn</i>
<i>sem vinnur í Chicago síðan 2002.</i>

243
00:16:59,200 --> 00:17:04,200
<i>Centrowitz er sigurviss.</i>
<i>Centrowitz er Ólympíumeistari.</i>

244
00:17:04,360 --> 00:17:09,480
<i>Nýtt bandarískt vallarmet.</i>
<i>Jordan Hasay hljóp stórkostlega.</i>

245
00:17:09,640 --> 00:17:12,480
Galen Rupp
vann tvenn Ólympíuverðlaun

246
00:17:12,640 --> 00:17:16,120
Matthew Centrowitz
vann gull á Ólympíuleikunum.

247
00:17:16,280 --> 00:17:20,360
Mo Farah er ekki bandarískur
en hann vann fjóra Ólympíutitla.

248
00:17:20,520 --> 00:17:22,880
<i>Mo Farah hefur forystu.</i>

249
00:17:23,040 --> 00:17:26,560
<i>Hann gefur í og geysist áfram.</i>

250
00:17:26,720 --> 00:17:28,840
Mo var auðvitað mjög hæfileikaríkur.

251
00:17:29,000 --> 00:17:32,240
Alberto nýtti sér það
og kom honum á toppinn.

252
00:17:32,400 --> 00:17:38,280
Hefði Mo Farah unnið
fern gullverðlaun án Albertos?

253
00:17:39,880 --> 00:17:41,760
Ég efast um það.

254
00:17:41,920 --> 00:17:43,880
<i>Verða tveir menn Salazars fremstir?</i>

255
00:17:44,040 --> 00:17:48,400
<i>Mo Farah fær gullið,</i>
<i>Galen Rupp er í öðru sæti.</i>

256
00:17:48,560 --> 00:17:51,800
Hann fann Galen Rupp
og kom honum á toppinn.

257
00:17:51,960 --> 00:17:55,160
Matthew Centrowitz.
Þetta var ótrúlegur árangur.

258
00:17:55,320 --> 00:18:00,040
<i>Kara Goucher, bronsverðlaunahafi</i>
<i>var líka í Nike Oregon-verkefninu.</i>

259
00:18:00,200 --> 00:18:05,960
<i>Dathan Ritzenhein, heimsmeistari</i>
<i>í hálfmaraþoni og methafi í 5.000.</i>

260
00:18:06,120 --> 00:18:10,760
<i>Shannon Rowbury, þrenn verðlaun</i>
<i>á Ólympíuleikum og heimsmóti.</i>

261
00:18:10,920 --> 00:18:14,120
<i>Mary Cain, heimsmethafi unglinga.</i>

262
00:18:14,280 --> 00:18:15,800
<i>Að ógleymdu íþróttafólki</i>

263
00:18:15,960 --> 00:18:19,840
<i>sem gekk síðar til liðs</i>
<i>við Oregon-verkefnið.</i>

264
00:18:20,000 --> 00:18:26,160
<i>Cam Levins, Kanadamethafi.</i>
<i>Donovan Brazier, heimsmeistari.</i>

265
00:18:26,320 --> 00:18:31,560
<i>Konstanze Klosterhalfen,</i>
<i>verðlaunahafi á heimsmeistaramóti.</i>

266
00:18:31,720 --> 00:18:37,200
<i>Einn besti kvenkyns íþróttamaður</i>
<i>allra tíma, Sifan Hassan.</i>

267
00:18:37,360 --> 00:18:42,920
<i>Hvorki karl né kona hefur áður unnið</i>
<i>10 þúsund og 1.500 metra hlaup.</i>

268
00:18:43,080 --> 00:18:45,880
<i>Annars eins tími hefur sjaldan sést.</i>

269
00:18:46,040 --> 00:18:48,480
Þessi tvöfaldi sigur var magnaður.

270
00:18:48,640 --> 00:18:54,040
Hún vann 10 þúsund metrana
og burstaði svo alla í 1.500 metrum.

271
00:18:54,200 --> 00:18:56,720
Enginn hafði reynt þetta áður.

272
00:18:58,200 --> 00:19:01,200
Honum tókst ætlunarverkið.

273
00:19:01,360 --> 00:19:03,120
Hann var á hátindinum.

274
00:19:05,160 --> 00:19:08,480
Salazar sagði:
"Ég viðurkenni ekki ósigur.

275
00:19:08,640 --> 00:19:10,600
Ég held að við getum keppt."

276
00:19:10,760 --> 00:19:15,920
Þetta viðhorf gjörbreytti
frjálsum íþróttum í Bandaríkjunum.

277
00:19:21,280 --> 00:19:23,360
DOHA, KATAR
30. SEPTEMBER 2019

278
00:19:23,520 --> 00:19:27,560
<i>Einn þekktasti maðurinn</i>
<i>í frjálsum íþróttum í fréttum.</i>

279
00:19:27,720 --> 00:19:31,320
<i>Alberto Salazar, þjálfari</i>
<i>í Nike Oregon-verkefninu</i>

280
00:19:31,480 --> 00:19:33,760
<i>er kominn í fjögurra ára bann.</i>

281
00:19:33,920 --> 00:19:36,920
<i>Eftir langa rannsókn</i>
<i>tilkynnti lyfjaeftirlitið</i>

282
00:19:37,080 --> 00:19:42,640
<i>að Salazar</i>
<i>og Jeffrey Brown, innkirtlafræðingur</i>

283
00:19:42,800 --> 00:19:45,080
<i>færu í fjögurra ára bann.</i>

284
00:19:45,240 --> 00:19:51,040
<i>Parker, framkvæmdastjóri Nike</i>
<i>vissi ekki af lyfjatilraununum.</i>

285
00:19:51,200 --> 00:19:55,000
<i>Í einni þeirra var notað smyrsl</i>
<i>með karlkyns hormónum.</i>

286
00:19:57,840 --> 00:20:02,080
Weldon Johnson,
meðstofnandi LetsRun.com

287
00:20:02,240 --> 00:20:07,720
Vefsíðan er fyrir áhugafólk um hlaup,
þá allra hörðustu í Bandaríkjunum

288
00:20:07,880 --> 00:20:11,040
sem fylgjast með hlaupakeppnum.

289
00:20:13,040 --> 00:20:16,760
Þegar það spurðist út,
á miðju HM-móti 2019

290
00:20:16,920 --> 00:20:19,560
að Alberto Salazar
væri kominn í bann,

291
00:20:19,720 --> 00:20:24,200
fannst þér tímasetningin
vera dularfull?

292
00:20:24,360 --> 00:20:29,480
Já, mér fannst það.
Vorum við ekki í Doha?

293
00:20:29,640 --> 00:20:31,960
Ég var furðu lostinn.

294
00:20:32,120 --> 00:20:36,080
Alberto Salazar kominn
í fjögurra ára bann frá íþróttinni.

295
00:20:36,240 --> 00:20:39,400
"Núna?" hugsaði ég.
"Er þetta grín?"

296
00:20:41,400 --> 00:20:44,400
Menn vildu ná stórlaxi.

297
00:20:44,560 --> 00:20:47,240
Það vakti líka umtal
af því hver hann er.

298
00:20:47,400 --> 00:20:50,560
Hann hafði þjálfað lengi
og Nike stóð með honum.

299
00:20:50,720 --> 00:20:53,160
SALAZAR
Í FJÖGURRA ÁRA LYFJABANN

300
00:20:53,320 --> 00:20:56,360
Þegar ég heyrði þetta
fékk ég algjört áfall.

301
00:20:56,520 --> 00:21:00,520
Af hverju gerði lyfjaeftirlitið þetta
og á þessum tíma,

302
00:21:00,680 --> 00:21:06,640
þegar íþróttafólkið hans
var á heimsmeistaramóti?

303
00:21:06,800 --> 00:21:10,960
Sögusagnir höfðu verið
um Alberto Salazar í nokkur ár

304
00:21:11,120 --> 00:21:14,160
en þær höfðu allar
verið kveðnar niður.

305
00:21:15,240 --> 00:21:20,480
Rannsókn bandaríska lyfjaeftirlitsins
var fimm eða sex ára gömul.

306
00:21:22,320 --> 00:21:25,960
Árið 2015 hefði verið stórfrétt
að setja hann í bann.

307
00:21:26,120 --> 00:21:29,640
Að koma fram með málið
á miðju heimsmeistaramóti,

308
00:21:29,800 --> 00:21:31,320
var skot yfir markið.

309
00:21:31,480 --> 00:21:33,880
ÁSTÆÐUR ÞESS
AÐ SALAZAR FÓR Í BANN:

310
00:21:34,040 --> 00:21:37,560
TILRAUNIR MEÐ TESTÓSTERÓN
L-KARITÍN SPRAUTUR

311
00:21:37,720 --> 00:21:42,200
BROT Á LYFJAREGLUM

312
00:21:42,360 --> 00:21:44,960
ÍÞRÓTTAMENN SALAZARS
VORU EKKI ÁSAKAÐIR

313
00:21:45,120 --> 00:21:48,200
Ásakanirnar voru býsna tæknilegar.

314
00:21:48,360 --> 00:21:52,840
Tvær tengdust ekki íþróttafólki
og Alberto viðurkenndi þær,

315
00:21:53,000 --> 00:21:56,160
tilraunir með L-karnitín
á Steve Magnus þjálfara

316
00:21:56,320 --> 00:22:01,680
og testósterón-tilraunir
á sonum sínum sem kepptu ekki.

317
00:22:01,840 --> 00:22:06,040
Salazar nuddaði testósterón-smyrsli
á herðar sona sinna

318
00:22:06,200 --> 00:22:10,800
til að kanna hvort niðurstaða
úr lyfjaprófi yrði jákvæð.

319
00:22:10,960 --> 00:22:14,040
Andstæðingar gætu gert slíkt
við liðið hans

320
00:22:14,200 --> 00:22:16,160
og hann vildi vita hve mikið smyrsl

321
00:22:16,320 --> 00:22:18,560
gæfi jákvæða niðurstöðu.

322
00:22:18,720 --> 00:22:21,720
Það er ein skýring.
Kannski vildi hann vita

323
00:22:21,880 --> 00:22:24,880
hve mikið mátti nota
án þess að fá jákvæða niðurstöðu.

324
00:22:26,720 --> 00:22:28,600
Þetta var ekki spurning

325
00:22:28,760 --> 00:22:32,040
um hvort hann hefði
gert þetta eða ekki.

326
00:22:32,200 --> 00:22:34,880
Það kemur skýrt fram
að hann gerði þetta

327
00:22:35,040 --> 00:22:37,960
en enginn íþróttamanna hans
fór í bann.

328
00:22:38,120 --> 00:22:42,520
Hann braut af sér án þess
að það bitnaði á íþróttafólkinu.

329
00:22:45,080 --> 00:22:48,040
Enginn fór jafnoft í lyfjapróf
og Galen Rupp.

330
00:22:48,200 --> 00:22:50,200
Þau voru alltaf í lyfjaprófum.

331
00:22:50,360 --> 00:22:52,800
Ég einbeiti mér að því að hlaupa.

332
00:22:52,960 --> 00:22:55,480
Ég get endurtekið það.

333
00:22:55,640 --> 00:22:58,600
Ekkert okkar
hefur fengið jákvæða niðurstöðu

334
00:22:58,760 --> 00:23:02,680
um notkun á ólöglegum efnum
eða aðferðum.

335
00:23:03,680 --> 00:23:07,000
Margar spurningar vöknuðu
en eins og Alberto sagði

336
00:23:07,160 --> 00:23:09,840
tók enginn úr keppnisliðinu neitt.

337
00:23:10,000 --> 00:23:12,960
Það er það furðulega.

338
00:23:13,120 --> 00:23:15,880
Ekkert hefur verið sannað.

339
00:23:16,040 --> 00:23:19,320
Meðan ég var í Oregon-verkefninu

340
00:23:19,480 --> 00:23:23,520
sá ég ekkert ólöglegt
og mér var aldrei boðið neitt slíkt.

341
00:23:23,680 --> 00:23:28,600
Ekkert af því sem sagt er núna.
Annars hefði ég farið.

342
00:23:28,760 --> 00:23:32,240
Hvað heldur fólk?
Að ég fari ekki í lyfjapróf?

343
00:23:32,400 --> 00:23:36,320
Ég trúi á lyfjalausar íþróttir.
Ég er og verð lyfjalaus.

344
00:23:37,840 --> 00:23:42,040
Alberto leggur hart að sér,
það er það sem ég veit.

345
00:23:42,200 --> 00:23:43,800
LYFJAEFTIRLITIÐ KOMST AÐ ÞVÍ

346
00:23:43,960 --> 00:23:46,520
AÐ ALBERTO GAF ENGUM

347
00:23:46,680 --> 00:23:48,720
Í OREGON-VERKEFNINU
ÓLÖGLEG LYF.

348
00:23:48,880 --> 00:23:50,840
"HANN VANN
EFTIR BESTU VITUND

349
00:23:51,000 --> 00:23:54,560
EN BRAUT REGLUR ÓVILJANDI."

350
00:23:54,720 --> 00:23:58,960
Hvernig gat hann svindlað
en ekki íþróttafólkið hans?

351
00:24:00,960 --> 00:24:04,560
Það þarf að skilja
hvað kveikir í Alberto

352
00:24:04,720 --> 00:24:08,720
og af hverju Nike treysti honum
jafn vel og raun ber vitni.

353
00:24:12,880 --> 00:24:15,080
Það má bæta þjálfunaraðferðir.

354
00:24:15,240 --> 00:24:17,560
Vandamálið er hins vegar

355
00:24:17,720 --> 00:24:20,600
þegar árangur
byggist á ólöglegum lyfjum.

356
00:24:20,760 --> 00:24:24,080
Við komum ekki nálægt slíku.

357
00:24:24,240 --> 00:24:27,480
Það er einfaldlega ekki í myndinni.

358
00:24:29,720 --> 00:24:32,640
Alberto Salazar
var besti þjálfari í heimi.

359
00:24:35,440 --> 00:24:39,440
Æskudraumurinn rættist
þegar ég fékk hann sem þjálfara.

360
00:24:40,440 --> 00:24:42,720
Ég sá hann hlaupa í sjónvarpinu.

361
00:24:42,880 --> 00:24:44,640
Pabbi kallaði á mig

362
00:24:44,800 --> 00:24:47,960
"Maður frá Oregon
er að vinna hlaupið."

363
00:24:48,120 --> 00:24:50,720
Það var Boston-maraþonið.

364
00:24:50,880 --> 00:24:57,760
Alberto var meira en þjálfari.
Hann var 50 prósent þjálfari

365
00:24:57,920 --> 00:25:00,120
og 50 prósent markþjálfi.

366
00:25:00,280 --> 00:25:02,360
K. GOUCHER
NIKE-OREGON 2005-2011

367
00:25:02,520 --> 00:25:08,160
Það var draumur að komast á HM
og vinna til verðlauna.

368
00:25:08,320 --> 00:25:13,240
Ég birtist á forsíðum
og það var Alberto að þakka.

369
00:25:13,400 --> 00:25:16,000
Hann kenndi mér
að stækka draumana.

370
00:25:16,160 --> 00:25:21,960
Hann hafði heilmikið að segja
um árangurinn sem ég náði.

371
00:25:23,440 --> 00:25:26,960
Hann var mér eins og faðir.
Við töluðum um allt.

372
00:25:27,120 --> 00:25:30,360
Hann sagði mömmu
hve vænt honum þætti um mig.

373
00:25:30,520 --> 00:25:32,400
Við vorum mikið saman.

374
00:25:34,800 --> 00:25:38,320
Ég sagði honum allt,
ekki bara um hlaupin.

375
00:25:38,480 --> 00:25:41,920
Um fortíðina og framtíðardraumana.

376
00:25:42,080 --> 00:25:45,040
Það er furðulegt
því nú þekki ég hann ekki.

377
00:25:45,200 --> 00:25:47,880
Á þessum tíma
gat ég sagt honum allt.

378
00:25:51,760 --> 00:25:57,920
Al stefndi að fullkomnun og spurði:

379
00:26:00,360 --> 00:26:05,480
"Af hverju ætti ég að þjálfa 90%
þegar bæði þjálfari og íþróttamaður

380
00:26:05,640 --> 00:26:10,960
þurfa að leggja sig 100% fram
til að verða framúrskarandi?"

381
00:26:13,360 --> 00:26:18,400
Það er erfitt að elska hann
en auðvelt að virða hann.

382
00:26:18,560 --> 00:26:20,720
Hann er óhagganlegur öfgamaður.

383
00:26:22,000 --> 00:26:26,800
Hann er ófullkomið séní
eins og margir sérvitringar

384
00:26:26,960 --> 00:26:32,560
og þeir sem ganga lengra en aðrir.
Þeir ná frábærum árangri

385
00:26:32,720 --> 00:26:35,960
en gera líka mistök
og fara stundum yfir strikið.

386
00:26:36,120 --> 00:26:37,640
R. LOVETT ÞJÁLFARI

387
00:26:37,800 --> 00:26:40,760
Ég heiti Rick Lovett.
Ég þjálfa hlaup

388
00:26:40,920 --> 00:26:44,600
og skrifaði bækur með Alberto.
Þannig kynntumst við.

389
00:26:44,760 --> 00:26:51,000
Hann vildi fara
eins nálægt mörkunum og hægt var

390
00:26:51,160 --> 00:26:53,160
og spáði í hvert smáatriði.

391
00:26:53,320 --> 00:26:57,080
Vandinn er að þá verða mörkin

392
00:26:57,240 --> 00:27:01,240
ekki jafn skýr
og línurnar á hlaupabrautinni.

393
00:27:06,200 --> 00:27:08,360
ÞAÐ ER ERFITT AÐ VERA
MEÐ ÞEIM BESTU

394
00:27:08,520 --> 00:27:10,680
ÁN RAUÐKORNAVAKA
EÐA VAXTARHORMÓNA

395
00:27:10,840 --> 00:27:14,720
ALBERTO SALAZAR
Í DUKE 1999

396
00:27:14,880 --> 00:27:18,080
Alberto hélt ræðu í Duke 1999

397
00:27:18,240 --> 00:27:19,880
um takmörk mannslíkamans

398
00:27:20,040 --> 00:27:24,080
og sagðist telja ómögulegt

399
00:27:24,240 --> 00:27:26,000
að keppa meðal hinna bestu

400
00:27:26,160 --> 00:27:30,440
án þess að nota efni eða tækni
sem bæta árangur.

401
00:27:30,600 --> 00:27:34,040
Hefði verið rétt
að gagnrýna Alberto Salazar

402
00:27:34,200 --> 00:27:38,200
fyrir þessi ummæli?

403
00:27:38,360 --> 00:27:42,240
Hann sagði útilokað að vera bestur
án þess að sveigja reglur.

404
00:27:42,400 --> 00:27:47,120
Þetta þótti stórmál um 1995
þegar hann sagði þetta.

405
00:27:47,280 --> 00:27:51,240
Ég hljóp með Oregon á þessum tíma
og þetta var umtalað.

406
00:27:51,400 --> 00:27:54,920
Allir voru sammála því
að hann væri að segja satt.

407
00:27:59,280 --> 00:28:05,760
Á 10. áratugnum var altalað
að ólögleg lyfjanotkun væri algeng.

408
00:28:05,920 --> 00:28:11,480
Met frá þessum tíma standa enn
í frjálsíþróttum og hlaupum.

409
00:28:11,640 --> 00:28:14,960
EPO eða <i>Erythropoietin</i>
er hormónið rauðkornavaki

410
00:28:15,120 --> 00:28:17,520
sem nýrun mynda og örva framleiðslu

411
00:28:17,680 --> 00:28:23,160
á rauðu blóðkornunum
sem flytja súrefni í blóðinu.

412
00:28:23,320 --> 00:28:25,680
Fleiri rauð blóðkorn
flytja meira súrefni

413
00:28:25,840 --> 00:28:28,040
og bæta frammistöðu mannsins.

414
00:28:28,200 --> 00:28:31,960
EPO var notað gegn blóðleysi
í læknisfræðilegum tilgangi.

415
00:28:32,120 --> 00:28:35,360
Íþróttamenn fóru fljótlega
að notfæra sér lyfið.

416
00:28:35,520 --> 00:28:40,160
Þetta var villta vestrið
því lyfjapróf náðu ekki til lyfsins.

417
00:28:41,160 --> 00:28:45,520
Í frásögnum um Lance Armstrong
og hvað var gert

418
00:28:45,680 --> 00:28:49,640
til að standast lyfjapróf,
sést að leynimakkið var mikið.

419
00:28:49,800 --> 00:28:55,800
Ummælin voru notuð gegn Salazar
sem sönnun þess að hann svindlaði

420
00:28:55,960 --> 00:28:57,920
en það er alrangt.

421
00:28:58,080 --> 00:29:01,000
Þetta var staðreynd á þessum tíma.

422
00:29:01,160 --> 00:29:04,400
Eina leiðin til að sigra mann
sem notar EPO

423
00:29:04,560 --> 00:29:07,840
er að nota slík efni sjálfur.
Svo öflugt er það.

424
00:29:09,320 --> 00:29:10,960
Hann spurði sig bara:

425
00:29:11,120 --> 00:29:15,800
"Get ég virt reglurnar
og náð samt frábærum árangri?"

426
00:29:15,960 --> 00:29:18,040
Um það snerist áætlunin hans.

427
00:29:18,200 --> 00:29:20,200
Ein þrjátíu.
Ein þrjátíu og ein, Mo.

428
00:29:20,360 --> 00:29:24,680
Alberto var líklega
besti þjálfari sögunnar.

429
00:29:24,840 --> 00:29:28,320
Hann var frumlegur.
Hann var snillingur.

430
00:29:28,480 --> 00:29:32,200
Hann var ákveðinn
og gríðarlegur keppnismaður.

431
00:29:33,640 --> 00:29:35,960
Eins og brjálaður vísindamaður.

432
00:29:37,520 --> 00:29:40,440
Hann byrjaði með háfjallaþjálfunina

433
00:29:40,600 --> 00:29:43,720
og deildi við yfirvöld
um réttmæti hennar

434
00:29:43,880 --> 00:29:48,000
í heimahúsum.
Hann hafði betur í deilunni.

435
00:29:48,160 --> 00:29:54,720
Alberto útbjó háfjallamiðstöð
og Nike Oregon-verkefnið hófst.

436
00:29:54,880 --> 00:29:58,680
Hvert herbergi var stillt
á ákveðna hæð yfir sjávarmáli

437
00:29:58,840 --> 00:30:04,200
og menn gátu verið í misþunnu lofti
án þess að fara út úr húsi.

438
00:30:07,960 --> 00:30:11,440
Hann lét Galen hlaupa
50 mílur á viku í vatni.

439
00:30:11,600 --> 00:30:14,760
Hlaupabretti var í sundlauginni
og hann gat hlaupið

440
00:30:14,920 --> 00:30:19,520
30 eða 40 mílur á viku
án þess að álagið yrði of mikið.

441
00:30:19,680 --> 00:30:21,160
Þannig hugsaði hann.

442
00:30:22,880 --> 00:30:26,760
Alter var til dæmis ekki til
en hann stofnaði fyrirtækið

443
00:30:26,920 --> 00:30:30,080
til að gefa fólki kost
á heilbrigðum lífsstíl,

444
00:30:30,240 --> 00:30:34,680
eins og endurhæfingu eftir meiðsli.
Þetta skipti miklu máli.

445
00:30:35,920 --> 00:30:39,520
Ég skrifa um vísindi og íþróttir
svo ég vil vita

446
00:30:39,680 --> 00:30:42,320
hvernig má nýta tækni
til að hlaupa hraðar.

447
00:30:43,360 --> 00:30:46,240
Þegar ég heyrði eitthvað furðulegt,

448
00:30:46,400 --> 00:30:48,720
að eitthvað gæti aukið hraða,

449
00:30:48,880 --> 00:30:51,080
leitaði ég að rannsóknum.

450
00:30:51,240 --> 00:30:53,000
Svo áttaði ég mig á því

451
00:30:53,160 --> 00:30:55,840
að Alberto hafði beitt aðferðinni
árum saman.

452
00:30:57,080 --> 00:30:59,840
Ljósabekkir voru notaðir.

453
00:31:00,000 --> 00:31:04,320
Í kuldameðferð var notað
fljótandi köfnunarefni

454
00:31:04,480 --> 00:31:08,240
sem var undir frostmarki.
Það átti að flýta fyrir bata.

455
00:31:08,400 --> 00:31:10,600
Eftir þessa uppgötvun, tilkynnti hann

456
00:31:10,760 --> 00:31:13,080
að Ritzenhein hlypi í New York.

457
00:31:13,240 --> 00:31:15,800
Hann yrði í kælimeðferð
fyrir hlaupið.

458
00:31:15,960 --> 00:31:20,040
Kælitankur var fluttur
frá Texas til New York

459
00:31:20,200 --> 00:31:22,280
svo fótleggir Ritzenheins

460
00:31:22,440 --> 00:31:25,200
fengju kælimeðferð fyrir maraþonið.

461
00:31:26,200 --> 00:31:31,040
Ég sá Galen Rupp slá Bandaríkjamet
í tveimur mílum innan húss.

462
00:31:31,200 --> 00:31:33,880
Sex. Sjö. Hann er með þetta.

463
00:31:34,040 --> 00:31:38,200
Galen Rupp bætir metið
um tvær sekúndur.

464
00:31:38,360 --> 00:31:44,720
Skömmu seinna tók hann
endurtekin míluhlaup á æfingum.

465
00:31:44,880 --> 00:31:47,280
Mér fannst þetta alveg galið.

466
00:31:47,440 --> 00:31:49,320
<i>-Búinn á því.</i>
<i>-Ja hérna.</i>

467
00:31:50,840 --> 00:31:56,360
Ég komst að því að ég vissi ekkert
um hlaup og þjálfun.

468
00:31:56,520 --> 00:32:00,280
Þjálfarinn minn hefði aldrei samþykkt
svona æfingar eftir mótið

469
00:32:00,440 --> 00:32:02,480
og óvíst að ég hefði þolað þær.

470
00:32:03,680 --> 00:32:06,920
Á myndböndum sjást Alberto, Mo
og aðrir kappar

471
00:32:07,080 --> 00:32:11,080
æfa samviskusamlega
jafnvægi og styrk.

472
00:32:11,240 --> 00:32:14,920
Við gerðum þetta aldrei.
Jafnvægisæfingarnar mínar

473
00:32:15,080 --> 00:32:18,160
voru að halda á bjórkrús
með hægri og vinstri.

474
00:32:18,320 --> 00:32:21,360
Tímarnir breyttust
en þetta er aðdáunarvert.

475
00:32:22,360 --> 00:32:26,560
Ég er öfundsjúkur. Ég hefði viljað
svona aðstöðu og þjálfara

476
00:32:26,720 --> 00:32:28,920
sem var jafn snjall og vandvirkur.

477
00:32:29,080 --> 00:32:33,280
Ég hefði örugglega
getað hlaupið miklu hraðar.

478
00:32:33,440 --> 00:32:38,480
Þrettán, fjórtán.
Haldið stjórninni.

479
00:32:38,640 --> 00:32:41,520
Þegar Galen hljóp maraþonið í Ríó

480
00:32:41,680 --> 00:32:45,320
kom hann að fyrstu stöðinni
og greip flöskuna sína.

481
00:32:45,480 --> 00:32:49,640
Derhúfa var hengd á flöskuna
og þetta sér maður vel núna.

482
00:32:49,800 --> 00:32:52,440
Hann hélt áfram að hlaupa,

483
00:32:52,600 --> 00:32:56,920
tók af sér derhúfuna og setti á sig
þá sem var fest við flöskuna.

484
00:32:57,080 --> 00:33:01,560
Mér skilst að kælibúnaður
hafi verið í derhúfunni.

485
00:33:01,720 --> 00:33:06,040
Enginn velti fyrir sér að á stöðinni
mætti bara fá vatnsflösku,

486
00:33:06,200 --> 00:33:08,640
engan búnað.
Það var ekki bannað.

487
00:33:08,800 --> 00:33:11,240
Enginn hafði hugsað út í það

488
00:33:11,400 --> 00:33:15,800
en Alberto sá glufu í reglunum
sem nýttist fólkinu hans.

489
00:33:15,960 --> 00:33:18,720
Hann komst upp með það.
Þetta var snjallt.

490
00:33:18,880 --> 00:33:22,360
<i>Galen Rupp vinnur bronsverðlaun</i>
<i>í maraþoni</i>

491
00:33:22,520 --> 00:33:26,880
<i>og er samt byrjandi.</i>

492
00:33:27,040 --> 00:33:31,360
Sá sem notar EPO þarf ekki
hlaupabretti í sundlauginni.

493
00:33:31,520 --> 00:33:35,040
Hann leitaði allra leiða
til að ná tilsettum árangri.

494
00:33:35,200 --> 00:33:38,320
Það gerir hann ekki að svindlara.

495
00:33:38,480 --> 00:33:40,560
Hann skildi eðli vandamálsins.

496
00:33:44,160 --> 00:33:48,000
Hann reyndi að halda sig
innan reglurammans en fór samt

497
00:33:48,160 --> 00:33:50,440
eins nálægt mörkunum og hann gat.

498
00:33:52,400 --> 00:33:55,800
Það er áhættusamt
því þá getur maður

499
00:33:55,960 --> 00:33:57,560
óvart farið yfir strikið.

500
00:34:01,320 --> 00:34:04,720
Nike á sér góða og slæma hlið.

501
00:34:06,480 --> 00:34:09,680
Ég er Chris Chavez, blaðamaður
á <i>Sports Illustrated.</i>

502
00:34:09,840 --> 00:34:11,160
CHRIS CHAVEZ

503
00:34:11,320 --> 00:34:14,840
Í nóvember 2019 skrifaði ég
um Mary Cain og ásakanir

504
00:34:15,000 --> 00:34:21,280
um slæman anda í Nike Oregon
undir stjórn Albertos Salazar.

505
00:34:21,440 --> 00:34:23,800
ANDINN Í OREGON-VERKEFNINU

506
00:34:23,960 --> 00:34:30,760
Mary Cain sagði <i>New York Times</i>
frá andlegri og líkamlegri misnotkun

507
00:34:30,920 --> 00:34:34,720
sem þjálfari hennar, Alberto Salazar
beitti hana

508
00:34:34,880 --> 00:34:40,120
er hún var í Nike Oregon-verkefninu
og myndbandið var áhrifamikið.

509
00:34:42,560 --> 00:34:44,880
Ég var spretthörðust
í Bandaríkjunum.

510
00:34:45,040 --> 00:34:48,720
Ég valdi Nike því ég vildi verða
besta íþróttakona sögunnar.

511
00:34:50,120 --> 00:34:54,560
Þess í stað varð ég
fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi

512
00:34:54,720 --> 00:34:58,360
í kerfi sem Alberto hannaði
og Nike studdi.

513
00:34:59,960 --> 00:35:06,120
<i>Mary Cain stingur af hlaupara</i>
<i>sem eru helmingi eldri en hún.</i>

514
00:35:06,280 --> 00:35:09,120
<i>Hún sigrar örugglega.</i>

515
00:35:09,280 --> 00:35:12,760
<i>Sextán ára stúlka náði titlinum.</i>

516
00:35:12,920 --> 00:35:16,440
Hún var vonarstjarna.

517
00:35:16,600 --> 00:35:21,520
Allt í einu hrakaði henni.

518
00:35:21,680 --> 00:35:25,760
Cain-ljóminn frá því 2013 hvarf

519
00:35:25,920 --> 00:35:28,920
og það var ekki almennilega vitað

520
00:35:29,080 --> 00:35:33,000
hvert hún fór eða hvað gerðist.

521
00:35:35,000 --> 00:35:39,800
Á <i>Occidental Classic-</i> mótinu
í Kaliforníu 2015

522
00:35:39,960 --> 00:35:42,240
gekk Mary Cain ekki vel.

523
00:35:42,400 --> 00:35:47,960
Hún varð í 11. sæti á 4:16.48.

524
00:35:48,120 --> 00:35:54,880
Alberto Salazar reiddist og talaði
opinberlega um holdarfar hennar

525
00:35:55,040 --> 00:36:00,920
fyrir framan annað íþróttafólk
og þjálfara sem voru á staðnum.

526
00:36:01,080 --> 00:36:05,600
Eftir þetta hlaup
sagði hún Alberto Salazar

527
00:36:05,760 --> 00:36:11,440
frá sjálfsskaða,
að hún væri að skera sig.

528
00:36:11,600 --> 00:36:15,440
Hún bjóst við að fá faglega aðstoð

529
00:36:15,600 --> 00:36:18,280
sem hún fékk ekki.
Þessu var sópað undir teppi.

530
00:36:18,440 --> 00:36:24,200
Þau borðuðu saman en hún fékk ekki
aðstoðina sem hún þurfti.

531
00:36:24,360 --> 00:36:27,000
Ef hlaupari í mínu liði
segði mér frá slíku

532
00:36:27,160 --> 00:36:31,480
myndi ég drekka nóg kaffi
til að vaka alla nóttina.

533
00:36:31,640 --> 00:36:36,040
Ég myndi ræða málið strax
og finna leið til aðstoðar.

534
00:36:36,200 --> 00:36:39,440
FAÐIR MARY ER LÆKNIR.
FORELDRAR HENNAR VISSU ALLT

535
00:36:39,600 --> 00:36:43,040
UM ÞJÁLFUN MÍNA.
ÉG ÓSKAÐI ALDREI EFTIR ÞVÍ

536
00:36:43,200 --> 00:36:47,000
AÐ HÚN LÉTTI SIG UM OF.
A. SALAZAR, 8. NÓVEMBER 2019.

537
00:36:47,160 --> 00:36:50,800
Atvinnumenn þurfa
að standast svona álag.

538
00:36:50,960 --> 00:36:55,840
Hún var unglingur
þegar hún kom inn í þennan heim.

539
00:36:56,000 --> 00:37:00,080
Fáir unglingar höndla það
og auk þess flutti hún að heiman.

540
00:37:00,240 --> 00:37:05,520
Foreldrar hennar töldu best
að hún væri hjá Alberto.

541
00:37:06,640 --> 00:37:10,040
Þegar hún undirritaði samning
við Salazar, man ég

542
00:37:10,200 --> 00:37:14,360
að ég hugsaði: "Hún er of sjálfstæð
og fjörmikil fyrir hann."

543
00:37:14,520 --> 00:37:19,280
Maður fer ekki til Albertos Salazar
til að skemmta sér.

544
00:37:19,440 --> 00:37:21,720
Þetta var vond blanda.

545
00:37:24,040 --> 00:37:28,880
Þegar hann hljóp maraþon
í Suður-Afríku og hitanum þar,

546
00:37:29,040 --> 00:37:33,520
neitaði hann að drekka vatn
því hann vildi ekki þyngja sig.

547
00:37:33,680 --> 00:37:38,840
<i>Frábær sigur og mjög góður tími,</i>
<i>rúmir fimm tímar og 38 mínútur.</i>

548
00:37:39,000 --> 00:37:41,520
Hann var með þyngd á heilanum.

549
00:37:41,680 --> 00:37:46,480
Ef ég læsi það og 15 ára dóttir mín
hefði áhuga á að vinna með Salazar,

550
00:37:46,640 --> 00:37:50,000
myndi ég segja þvert nei.

551
00:37:50,160 --> 00:37:55,440
Hann var ekkert að fela
hversu bilaður hann var.

552
00:37:58,800 --> 00:38:02,840
Alberto minnir helst
á bilaðan vísindamann.

553
00:38:03,000 --> 00:38:09,720
Hann fer að mörkunum,
meðal annars varðandi þyngd.

554
00:38:09,880 --> 00:38:14,240
Hann telur nokkur grömm
skipta sköpum í 10 kílómetra hlaupi.

555
00:38:14,400 --> 00:38:16,960
Þau skilji gull frá silfri.

556
00:38:17,120 --> 00:38:20,400
Þessi grömm geta líka
brotið manneskju niður.

557
00:38:20,560 --> 00:38:22,680
Allir atvinnuhlauparar vita

558
00:38:22,840 --> 00:38:25,320
að árangur versnar
ef þeir eru of þungir.

559
00:38:25,480 --> 00:38:28,920
Þetta þarf að ræða af varfærni
við íþróttakonur

560
00:38:29,080 --> 00:38:33,240
og fáir eru hæfir til þess.
Einkum jafn metnaðarfullur þjálfari

561
00:38:33,400 --> 00:38:37,440
og Alberto sem var ekki sá besti
til að ræða þetta mál.

562
00:38:38,600 --> 00:38:41,400
Alberto minntist oft á þyngdina,

563
00:38:41,560 --> 00:38:47,200
að ég væri of þungur.
Ég var yfirleitt um 64-65 kíló

564
00:38:47,360 --> 00:38:50,760
og man hve spenntur ég var
þegar ég komst í 62 kíló.

565
00:38:50,920 --> 00:38:53,880
Þegar ég kom á æfingu
sagði ég Alberto það.

566
00:38:54,040 --> 00:38:56,400
Hann horfði á mig og sagði:

567
00:38:56,560 --> 00:38:58,200
"Komdu þér í 60 kíló."

568
00:38:59,320 --> 00:39:03,320
Hann spáði í þyngd hjá öllum.

569
00:39:03,480 --> 00:39:08,120
Var þrýst á þig að létta þig?

570
00:39:08,280 --> 00:39:10,880
Já, það var gert.

571
00:39:11,040 --> 00:39:14,920
Ég veit ekki af hverju
var miðað við ákveðna þyngd

572
00:39:15,080 --> 00:39:18,880
en já, það var sannarlega
lögð áhersla á að léttast.

573
00:39:19,040 --> 00:39:21,760
Ekkert af þessu kom á óvart.

574
00:39:21,920 --> 00:39:27,040
Alberto Salazar á ekki að gjalda
fyrir syndir heils samfélags,

575
00:39:27,200 --> 00:39:30,160
varðandi þyngd íþróttakvenna
og þess háttar.

576
00:39:30,320 --> 00:39:31,720
Hann var ekki sá eini.

577
00:39:31,880 --> 00:39:35,680
Hann var mjög áberandi og opinskár.

578
00:39:35,840 --> 00:39:39,120
Fallið er hæst úr háum söðli.

579
00:39:45,760 --> 00:39:51,600
Ákveðin tegund þjálfara
hefur mjög afmarkað markmið

580
00:39:51,760 --> 00:39:54,120
og það er

581
00:39:54,280 --> 00:40:00,160
að hámarka árangur sinna manna.

582
00:40:00,320 --> 00:40:04,240
Sumir fara í foreldrahlutverk
en foreldrar vinna ekki að því

583
00:40:04,400 --> 00:40:06,400
að hámarka árangur barnanna.

584
00:40:06,560 --> 00:40:09,160
Þeir eiga að byggja upp
ánægt fólk.

585
00:40:10,480 --> 00:40:13,840
Salazar er þjálfari
og er ekki í foreldrahlutverki.

586
00:40:14,000 --> 00:40:17,920
Fólk misskilur það, held ég.

587
00:40:18,080 --> 00:40:20,640
Hann þjálfar til árangurs.

588
00:40:22,080 --> 00:40:26,840
Þegar hann var barn
fékk hann streptókokkasýkingu í háls.

589
00:40:27,000 --> 00:40:29,600
Hann var rúmliggjandi með háan hita

590
00:40:29,760 --> 00:40:32,480
og úti var hríðarbylur.

591
00:40:32,640 --> 00:40:37,000
Hann læddist út,
fór út í vitlaust veður með hita

592
00:40:37,160 --> 00:40:40,120
og sýkingu í hálsi
og hljóp mílurnar sínar.

593
00:40:40,280 --> 00:40:43,080
Þannig er þessi maður.

594
00:40:43,240 --> 00:40:45,200
Hann fer ekki í grafgötur.

595
00:40:45,360 --> 00:40:48,680
Hann laumaðist út í hríðarbyl

596
00:40:48,840 --> 00:40:51,720
með 39,5 stiga hita til að hlaupa.

597
00:40:51,880 --> 00:40:56,640
Hann hljóp maraþon
í eyðimörk í Afríku

598
00:40:56,800 --> 00:40:59,360
og drakk ekkert til að þyngjast ekki.

599
00:40:59,520 --> 00:41:03,720
Hann ofreyndi sig svo
að honum var veitt hinsta kveðja

600
00:41:03,880 --> 00:41:08,760
því menn töldu hann af.
Þannig er þessi maður.

601
00:41:08,920 --> 00:41:14,320
Það er leiðin sem hann fer.
Þeir sem eru ekki til í þetta

602
00:41:14,480 --> 00:41:18,040
eiga ekki að fara í þjálfun
hjá Alberto Salazar.

603
00:41:21,520 --> 00:41:25,840
Nike aðhylltist verklagið
að styðja íþróttamenn til sigurs

604
00:41:26,000 --> 00:41:29,840
hvað sem það kostaði.
Þannig var vinnuumhverfi Salazars.

605
00:41:30,000 --> 00:41:36,760
Það má segja að Alberto
hafi verið holdgervingur þess

606
00:41:36,920 --> 00:41:38,480
sem Nike stóð fyrir.

607
00:41:42,080 --> 00:41:47,760
Í Nike Oregon-verkefninu
snerist heimspeki hans

608
00:41:47,920 --> 00:41:50,680
um að gera allt, nýta vísindi, tækni

609
00:41:50,840 --> 00:41:55,160
þekkingu og nýsköpun
til að auka hlaupahraða.

610
00:41:56,200 --> 00:41:58,760
L-karnitín
er fullkomið dæmi um það.

611
00:41:58,920 --> 00:42:03,000
<i>Hann notaði L-karnitín</i>
<i>til að flýta fyrir endurheimt</i>

612
00:42:03,160 --> 00:42:05,000
<i>hjá íþróttafólki.</i>

613
00:42:05,160 --> 00:42:10,160
<i>Löglegt er að nota efnið</i>
<i>að hámarki 50 ml á sex tíma fresti.</i>

614
00:42:10,320 --> 00:42:12,560
<i>Salazar er sagður gefa L-karnitín</i>

615
00:42:12,720 --> 00:42:15,840
<i>með sprautu í æð</i>
<i>og hefur það vakið spurningar</i>

616
00:42:16,000 --> 00:42:20,360
<i>hjá bandaríska lyfjasambandinu.</i>

617
00:42:21,440 --> 00:42:23,680
Karitín er efni í vöðvum líkamans

618
00:42:23,840 --> 00:42:27,640
og gæti fræðilega
haft áhrif á áreynslu við æfingar.

619
00:42:27,800 --> 00:42:31,960
Spurningin var hvort sprauta
með stórum forðaskammti í æð

620
00:42:32,120 --> 00:42:36,000
hefði fljótvirk áhrif.

621
00:42:36,160 --> 00:42:42,160
Spurningin var hvort Farah
tók þátt í þessari tilraun.

622
00:42:42,320 --> 00:42:47,520
Menn virðast ekki muna vel
hvað gerðist og hvað ekki.

623
00:42:47,680 --> 00:42:50,000
MO FARAH
FJÓRFALDUR ÓLYMPÍUMEISTRI

624
00:42:50,160 --> 00:42:56,640
Hann sagði lyfjasambandinu
að hann hefði ekki notað L-karitín.

625
00:42:57,640 --> 00:43:00,440
Spurður hvort hann hefði aldrei
notað efnið

626
00:43:00,600 --> 00:43:02,240
sagði hann: "Nei, aldrei

627
00:43:02,400 --> 00:43:04,240
og myndi aldrei nota það."

628
00:43:04,400 --> 00:43:08,520
Hann fór fram, kom inn aftur
og sagði þá kæruleysislega

629
00:43:08,680 --> 00:43:10,680
að raunar vildi hann

630
00:43:10,840 --> 00:43:14,880
koma hreint til dyranna.
Kannski missti hann það út úr sér.

631
00:43:15,040 --> 00:43:17,160
Mo er ekki sá mælskasti.

632
00:43:17,320 --> 00:43:20,400
Með þessu orðalagi
blandaði hann sér í málið.

633
00:43:20,560 --> 00:43:22,720
Hann hefði getað sagt

634
00:43:22,880 --> 00:43:27,120
að nú myndi hann þetta betur.
Það hefði verið heppilegra.

635
00:43:27,280 --> 00:43:29,640
Það eru vonbrigði að sjá þetta.

636
00:43:29,800 --> 00:43:36,160
Þið eruð alltaf að tala um þetta.
Farah, Farah, Farah.

637
00:43:36,320 --> 00:43:40,040
Ég er ekki ásakaður um neitt.
Ég gerði ekkert af mér.

638
00:43:40,200 --> 00:43:46,480
Ásakanirnar snúa að Alberto Salazar
og Oregon-verkefninu.

639
00:43:46,640 --> 00:43:49,600
Þetta er löglegt efni
sem finnst í fæðunni.

640
00:43:49,760 --> 00:43:53,120
Sumir töldu það geta bætt árangur.

641
00:43:53,280 --> 00:43:56,960
Enginn trúir því lengur
en Salazar lét á það reyna.

642
00:43:57,120 --> 00:44:00,920
Reglur lyfjasambandsins
banna meira en 50 ml sprautu

643
00:44:01,080 --> 00:44:03,360
á sex tíma fresti og vill síður

644
00:44:03,520 --> 00:44:06,440
að efnum sé sprautað í líkamann.

645
00:44:06,600 --> 00:44:11,720
<i>Bandaríska lyfjasambandið segir</i>
<i>að Alberto Salazar, íþróttaþjálfari</i>

646
00:44:11,880 --> 00:44:15,800
<i>noti ólögleg efni</i>
<i>til að bæta árangur íþróttafólks.</i>

647
00:44:15,960 --> 00:44:20,920
<i>Lance Armstrong og Salazar</i>
<i>ræddu ný grá svæði í lyfjanotkun.</i>

648
00:44:21,080 --> 00:44:23,680
<i>Salazar sendi Armstrong tölvupóst</i>

649
00:44:23,840 --> 00:44:28,200
<i>og bað hann að hafa strax samband.</i>

650
00:44:28,360 --> 00:44:32,240
<i>"Við prófuðum það, það er frábært."</i>
<i>Salazar heldur því fram</i>

651
00:44:32,400 --> 00:44:38,160
<i>að um hafi verið að ræða lyf</i>
<i>sem WADA samþykkti.</i>

652
00:44:38,320 --> 00:44:42,680
Mo Farah fékk L-karnitín
í sprautuformi

653
00:44:42,840 --> 00:44:48,720
og neitaði því
þótt sýnt hefði verið fram á annað.

654
00:44:48,880 --> 00:44:52,360
Það gerði stöðuna enn grunsamlegri.

655
00:44:53,400 --> 00:44:57,040
Það var komið með sprautu
og honum sagt

656
00:44:57,200 --> 00:45:01,160
að hann fengi L-karnitín.
Hann man ekki eftir því.

657
00:45:01,320 --> 00:45:04,240
Kannski var Mo að snúa út úr
eins og Bill Clinton.

658
00:45:04,400 --> 00:45:08,200
"Ég átti ekki kynferðisleg samskipti
við þessa konu.

659
00:45:08,360 --> 00:45:11,400
Ég hélt að þetta
væri vítamínsprauta."

660
00:45:11,560 --> 00:45:15,280
Það er sanngjarnasta túlkunin
á frásögnum Mos.

661
00:45:15,440 --> 00:45:19,680
Dathan Ritzenhein viðurkenndi líka
að hafa notað L-karnitín.

662
00:45:19,840 --> 00:45:22,200
-Er það rétt?
-Já.

663
00:45:23,640 --> 00:45:27,000
Ég er Dathan Ritzenhein
yfirþjálfari On Athletics.

664
00:45:27,160 --> 00:45:30,200
Ég fór á þrenna Ólympíuleika,
sló Bandaríkjamet

665
00:45:30,360 --> 00:45:33,200
og vann brons í hálfmaraþoni.

666
00:45:33,360 --> 00:45:36,320
Getur þú sagt okkur
frá L-karnitíninu?

667
00:45:36,480 --> 00:45:41,320
Ég get það ekki
því málið er enn í gangi

668
00:45:41,480 --> 00:45:45,760
og ég get ekki tjáð mig.
Ég á að bera vitni aftur

669
00:45:45,920 --> 00:45:49,920
svo ég tjái mig ekki um þetta.

670
00:45:52,560 --> 00:45:55,480
Ef L-karnitín sprauta í rassinn

671
00:45:57,200 --> 00:46:00,280
er lögleg, þá er hún lögleg.

672
00:46:00,440 --> 00:46:03,480
Menn reyna
en allir íþróttamenn reyna.

673
00:46:05,840 --> 00:46:10,120
Ég hef engar sérstakar áhyggjur
af L-karnitíni.

674
00:46:10,280 --> 00:46:13,320
Alberto var að prófa sig áfram,
held ég

675
00:46:13,480 --> 00:46:17,320
eða leita leiða
til að auka hlaupahraða.

676
00:46:17,480 --> 00:46:24,200
Ég efast ekki um að ef leyfilegt var
að nota eitt gramm af einhverju

677
00:46:24,360 --> 00:46:30,000
hafi menn Albertos
notað 0,99 grömm.

678
00:46:32,800 --> 00:46:37,320
Ég heiti Jake Riley og árið 2020
var ég í bandaríska maraþonliðinu.

679
00:46:37,480 --> 00:46:39,560
Þetta eru jú amínósýrur

680
00:46:39,720 --> 00:46:43,000
sem má fá í fæðu
ef ákveðið magn er borðað.

681
00:46:43,160 --> 00:46:46,400
Þetta var einskonar þykkni,
ekki náttúrulegt.

682
00:46:46,560 --> 00:46:49,720
Það er margt
sem er ekki náttúrulegt.

683
00:46:49,880 --> 00:46:53,640
Þegar þú byrjar að sprauta þig

684
00:46:53,800 --> 00:46:56,240
ertu kominn á mjög hálan ís.

685
00:46:56,400 --> 00:47:00,240
4 3 2 1

686
00:47:00,400 --> 00:47:04,400
Þeir sem horfa á bókstafinn
en ekki anda laganna,

687
00:47:04,560 --> 00:47:06,560
lenda líklega í því

688
00:47:06,720 --> 00:47:10,240
einhvern tímann
að fara út af sporinu.

689
00:47:11,280 --> 00:47:16,880
Það lítur út fyrir að Alberto
hafi hugsanlega gengið of langt.

690
00:47:17,040 --> 00:47:20,640
Honum fannst þetta bara
vera hluti af því að vera 100%.

691
00:47:20,800 --> 00:47:24,600
"Ég veiti þeim hundrað prósent
og vil 100% frá þeim."

692
00:47:28,080 --> 00:47:32,720
Kara Goucher og fleiri
töldu eitthvað meira vera í gangi.

693
00:47:32,880 --> 00:47:34,840
Þetta var eins og helgidómur.

694
00:47:36,080 --> 00:47:40,440
Það voru engar sannanir
og aðeins tveir sem vita sannleikann.

695
00:47:40,600 --> 00:47:44,240
Ertu tilbúin að bera vitni,
eiðsvarin, ef til kemur?

696
00:47:44,400 --> 00:47:48,280
Ég myndi fagna slíku tækifæri,
sjálfrar mín vegna,

697
00:47:48,440 --> 00:47:52,840
allra í Oregon-verkefninu
og allra hlutaðeigandi lækna.

698
00:47:53,000 --> 00:47:55,760
Eiðsvarin?
Ég myndi fagna því.

699
00:48:00,160 --> 00:48:03,280
Ég fór að sjá ýmislegt
sem mér fannst óþægilegt

700
00:48:03,440 --> 00:48:06,040
og náði hámarki á HM 2011.

701
00:48:06,200 --> 00:48:11,880
Rúmu ári síðar sagði ég mönnum
hjá bandaríska lyfjasambandinu

702
00:48:12,040 --> 00:48:16,640
frá því sem ég sá í Oregon.
Árið 2015 tjáði ég mig opinberlega.

703
00:48:16,800 --> 00:48:21,800
Hvað sástu í Nike Oregon-verkefninu
sem þér fannst óþægilegt?

704
00:48:21,960 --> 00:48:24,280
Mikið af lyfseðilsskyldum lyfjum

705
00:48:24,440 --> 00:48:25,760
sem fólk þurfti ekki.

706
00:48:25,920 --> 00:48:31,760
Liðsfélagar gerðu sér upp vökvaskort
til að fá sprautur fyrir keppnir.

707
00:48:31,920 --> 00:48:36,320
Þjálfarinn bað mig að taka lyf
sem var ávísað á aðra, að óþörfu.

708
00:48:37,560 --> 00:48:41,160
Mér var sagt að testósteronsmyrslið
væri fyrir Alberto.

709
00:48:41,320 --> 00:48:47,960
Ég sá litlar lyfjaflöskur í ísskápnum
og var sagt að það væru ofnæmislyf.

710
00:48:48,120 --> 00:48:52,000
Þegar ég sá annað
sem var greinilega ekki í lagi

711
00:48:52,160 --> 00:48:57,760
eða liðsfélaga mína taka einhver lyf,
varð ég að fara.

712
00:48:57,920 --> 00:49:02,000
-Hvaða lyf voru það?
-B-vítamín var mér sagt.

713
00:49:02,160 --> 00:49:04,680
Það var ekki satt.

714
00:49:04,840 --> 00:49:06,400
-Hvað þá?
-Ég veit það ekki.

715
00:49:06,560 --> 00:49:12,080
Þetta voru þéttar töflur.
B-vítamín er ekki í því formi.

716
00:49:12,240 --> 00:49:15,520
Þjálfarinn minn vildi
að ég tæki Cytomel.

717
00:49:15,680 --> 00:49:19,000
Það er lyfseðilsskylt
skjaldkirtilslyf

718
00:49:19,160 --> 00:49:21,640
en ein aukaverkunin er þyngdartap.

719
00:49:21,800 --> 00:49:24,880
Þar fannst mér farið yfir strikið.

720
00:49:25,040 --> 00:49:31,840
KARA FÉKK CYTOMEL EINU SINNI
SAMKVÆMT FYRIRMÆLUM

721
00:49:32,000 --> 00:49:38,320
INNKIRTLALÆKNIS HENNAR,
DR. BROWN. - A. SALAZAR

722
00:49:38,480 --> 00:49:42,880
Sem íþróttamaður fór Alberto
út á ystu nöf.

723
00:49:43,040 --> 00:49:44,880
Sem þjálfari var hann eins.

724
00:49:45,040 --> 00:49:49,840
Hann stóð næstum alltaf með mér
en vissi kannski ekki alltaf

725
00:49:50,000 --> 00:49:55,480
hvað hann var að gera eða hvernig
við næðum bestum árangri.

726
00:49:56,720 --> 00:50:00,000
Það er helsti ókostur hans
því hann meinar vel.

727
00:50:00,160 --> 00:50:03,120
Það þarf að greina þarna á milli.

728
00:50:03,280 --> 00:50:08,400
Ég held að það sé rétt
sem hefur komið fram um hann.

729
00:50:08,560 --> 00:50:13,560
Ég kynntist Alberto Salazar
í kringum 1975.

730
00:50:13,720 --> 00:50:19,840
Ef Kara Goucher eða aðrir
ákváðu að fara frá Nike

731
00:50:20,000 --> 00:50:24,320
hefur þeim líklega þótt vegið

732
00:50:24,480 --> 00:50:28,720
að siðferði sínu.

733
00:50:29,880 --> 00:50:33,400
Hversu mikil áhrif
hefur þetta haft á þig?

734
00:50:33,560 --> 00:50:38,080
Mjög mikil.
Dagarnir eru misgóðir.

735
00:50:38,240 --> 00:50:41,880
Það er ótrúlegt hvernig líf mitt er.

736
00:50:42,040 --> 00:50:47,400
Ég hélt að eftir ferilinn myndi ég
aðstoða Alberto eða vinna hjá Nike.

737
00:50:47,560 --> 00:50:52,480
Að við yrðum alltaf
í lífi hvors annars.

738
00:50:52,640 --> 00:50:58,240
Stundum trúi ég því ekki
hvernig líf mitt fór á hvolf.

739
00:50:58,400 --> 00:51:01,440
Ég hélt að líf mitt
yrði allt öðruvísi.

740
00:51:01,600 --> 00:51:03,760
Saknarðu hans á einhvern hátt?

741
00:51:05,400 --> 00:51:11,360
Ég sakna þess sem ég hélt
að hann væri. Hann skipti mig máli.

742
00:51:11,520 --> 00:51:17,680
Hann er ekki sá sem ég hélt.
Það sem ég sakna er ekki til.

743
00:51:31,800 --> 00:51:36,960
Í skýrslunum koma fram ásakanir.

744
00:51:37,120 --> 00:51:39,520
Ég passaði hús Albertos Salazar.

745
00:51:39,680 --> 00:51:43,040
Hann hringdi og bað mig að koma,

746
00:51:43,200 --> 00:51:46,960
sagðist vera á leið úr bænum,
hvort ég gæti passað húsið.

747
00:51:47,120 --> 00:51:51,320
Hann sagði mér hvar allt væri,
matur og þessháttar

748
00:51:51,480 --> 00:51:56,040
og talaði ekkert um að fara ekki
inn í ákveðin herbergi eða opna ekki

749
00:51:56,200 --> 00:51:58,320
einhverjar skúffur.

750
00:51:58,480 --> 00:52:01,600
Alberto treysti mér.

751
00:52:01,760 --> 00:52:06,560
Það eitt veitir mér fullvissu
um að á því tímabili

752
00:52:06,720 --> 00:52:10,200
sem ég umgekkst Alberto
var ekkert í gangi.

753
00:52:10,360 --> 00:52:12,800
-Sástu aldrei neitt?
-Nei.

754
00:52:15,400 --> 00:52:18,520
Ég er Cameron Levins
og keppti á ÓL 2012.

755
00:52:18,680 --> 00:52:20,720
Ég á Kanadamet í maraþoni.

756
00:52:22,360 --> 00:52:25,720
Ég hljóp fyrir Nike Oregon
frá 2013 til 2017

757
00:52:25,880 --> 00:52:29,960
og er nú hjá Hoka One.

758
00:52:30,120 --> 00:52:33,600
Ég fann aldrei fyrir þrýstingi
og sá ekkert.

759
00:52:33,760 --> 00:52:39,400
Þegar ég fór til Nike Oregon
ræddum við Alberto þessi mál.

760
00:52:39,560 --> 00:52:45,960
Hann sagði að ef ég sæi eitthvað
skyldi ég bara neita því,

761
00:52:46,120 --> 00:52:50,760
segja eitthvað um það.

762
00:52:50,920 --> 00:52:54,600
Sástu eitthvað
sem olli þér hugarangri?

763
00:52:54,760 --> 00:52:57,160
Nei, ég upplifði ekkert slíkt.

764
00:52:57,320 --> 00:53:01,840
Ég fór í lyfjapróf aðra hvora viku

765
00:53:02,000 --> 00:53:04,520
og líka fyrir mót.

766
00:53:04,680 --> 00:53:08,440
Lyfjapróf sannar ekki
að maður taki ekki ólögleg lyf

767
00:53:08,600 --> 00:53:12,840
en ég reyndi sannarlega
að sýna fram á það.

768
00:53:14,960 --> 00:53:18,040
Það er óþægilegt
að tala um Oregon-verkefnið

769
00:53:18,200 --> 00:53:23,080
því almennt var reynsla mín
ekki neikvæð.

770
00:53:23,240 --> 00:53:26,680
Þegar vel gekk var allt gott.
Ég átti mjög góða spretti,

771
00:53:26,840 --> 00:53:29,880
setti Kanadamet í tíu þúsund metrum.

772
00:53:30,040 --> 00:53:36,520
Ég er tengdur Nike Oregon
og það litar allt líf mitt.

773
00:53:36,680 --> 00:53:43,680
Ég verð alltaf spurður um það
og því miður er það bara þannig.

774
00:53:43,840 --> 00:53:48,120
Ég veit að ég er ekki svindlari
og það nægir mér.

775
00:53:53,560 --> 00:53:56,960
Ég heiti Chris Derrick
og er atvinnuhlaupari.

776
00:53:58,080 --> 00:54:00,960
Ég hleyp fyrir Bowerman
sem Nike styður

777
00:54:01,120 --> 00:54:03,960
og er líka á samningi hjá Nike.

778
00:54:04,120 --> 00:54:08,240
Miklar framfarir hafa orðið
í lyfjaprófum á síðustu 20 árum.

779
00:54:09,560 --> 00:54:12,680
Ég gef upp stað og stund
þar sem ég verð örugglega

780
00:54:12,840 --> 00:54:14,960
í einn klukkutíma.

781
00:54:15,120 --> 00:54:18,280
Flestir taka prófin
heima hjá sér á morgnana.

782
00:54:18,440 --> 00:54:19,760
-Daglega?
-Já.

783
00:54:19,920 --> 00:54:21,480
Ef ég er úti í búð

784
00:54:21,640 --> 00:54:25,320
þegar þeir hringja,
þarf ég að fara strax heim í próf.

785
00:54:27,240 --> 00:54:33,840
Það er margt á gráu svæði
sem er sagt nýtast íþróttamönnum.

786
00:54:34,000 --> 00:54:37,040
Af hverju hef ég áhyggjur?

787
00:54:37,200 --> 00:54:39,280
Þótt einhver noti innöndunarlyf

788
00:54:39,440 --> 00:54:41,240
hleyp ég alveg á móti honum.

789
00:54:42,360 --> 00:54:44,800
Ég hef meiri áhyggjur af EPO-notkun

790
00:54:44,960 --> 00:54:47,680
og testósteron-notkun.

791
00:54:47,840 --> 00:54:49,160
Verða þeir gómaðir?

792
00:54:49,320 --> 00:54:55,240
Ég vil sjá meiri áherslu
á lyfjapróf við þessum efnum

793
00:54:55,400 --> 00:54:57,200
því málið snýst um þau.

794
00:55:00,880 --> 00:55:06,520
Dæmigert fyrir frjálsíþróttaheiminn
að ráðast gegn manninum

795
00:55:06,680 --> 00:55:09,240
sem er framsýnn.

796
00:55:09,400 --> 00:55:13,240
Þetta verða endalok Albertos Salazar.

797
00:55:13,400 --> 00:55:15,440
Ástæðurnar eru svo flóknar

798
00:55:15,600 --> 00:55:18,480
að ég skil ekki helminginn
af rökunum gegn honum.

799
00:55:20,600 --> 00:55:25,640
Kiprop var gómaður fyrir EPO-notkun,
alvarlegasta glæp í hlaupaheiminum.

800
00:55:25,800 --> 00:55:28,880
Hann er ekki einu sinni
sviptur verðlaunum.

801
00:55:29,040 --> 00:55:30,920
Hvað er á seyði?

802
00:55:36,240 --> 00:55:39,800
Ef einhver sýnir fram á

803
00:55:39,960 --> 00:55:46,800
að Salazar hafi notað ólögleg lyf
til að bæta árangur íþróttamanna,

804
00:55:46,960 --> 00:55:52,640
sem sannanlega stríða gegn reglum
um frjálsar íþróttir, yrði ég hissa.

805
00:55:54,000 --> 00:55:57,720
Svindl er fyrir þá
sem gefa sig ekki alla í íþróttina.

806
00:55:57,880 --> 00:56:01,040
Hugsunarháttur hinna er gjörólíkur.

807
00:56:01,200 --> 00:56:04,680
Þeir ná lengra innan kerfis
sem snýst um sigur.

808
00:56:04,840 --> 00:56:09,800
Salazar finnst að þeir sem ekki
standa sig eigi bara að deyja.

809
00:56:09,960 --> 00:56:13,880
Hann styttir sér ekki leiðir
og er ekki maður skyndilausna.

810
00:56:16,560 --> 00:56:22,400
Mér finnst ósennilegt
að hann hafi farið þessa leið.

811
00:56:28,040 --> 00:56:33,400
Salazars leitaði allra leiða
til að ná sem mestu út úr sínu fólki.

812
00:56:33,560 --> 00:56:36,880
Sú löngun sprettur ekki upp
úr engu.

813
00:56:37,040 --> 00:56:39,640
Hún passar fullkomlega

814
00:56:39,800 --> 00:56:43,520
við hugmyndafræði Nike
sem hann var hluti af.

815
00:56:43,680 --> 00:56:46,680
Dæmi um sama módel
sem koma Alberto ekki við

816
00:56:46,840 --> 00:56:50,280
eru skór sem Nike setti á markað

817
00:56:50,440 --> 00:56:55,120
með koltrefjaplötum eða vísindamenn
sem biðja menn að hlaupa maraþon

818
00:56:55,280 --> 00:56:56,840
undir tveimur tímum.

819
00:57:01,640 --> 00:57:05,440
Margir í íþróttaheiminum
gagnrýna völdin sem Nike hefur

820
00:57:05,600 --> 00:57:08,320
en Nike borgar fyrir þau völd.

821
00:57:09,360 --> 00:57:12,120
Það má ekki gera lítið
úr mikilvægi Nike.

822
00:57:12,280 --> 00:57:16,240
Sumt sem Nike gerir
kann að virðast gróft

823
00:57:16,400 --> 00:57:18,040
en án Nike væri ekkert.

824
00:57:21,040 --> 00:57:24,200
Hlaupaheimur án Nike
er nær óhugsandi.

825
00:57:24,360 --> 00:57:28,160
Þeir leggja meira fé í hlaup
en nokkur annar.

826
00:57:29,800 --> 00:57:33,440
Ég var í Nike-landsliðshóp
sem nú heitir Nike Cross.

827
00:57:33,600 --> 00:57:36,760
Þá koma 300 skólakrakkar saman.

828
00:57:36,920 --> 00:57:40,560
Nike skuldbindur sig ekki aðeins
til að þjálfa bestu börnin

829
00:57:40,720 --> 00:57:43,400
heldur líka til að þeim
sem eru lakari

830
00:57:43,560 --> 00:57:46,240
líði eins og rokkstjörnum.

831
00:57:46,400 --> 00:57:51,120
Þetta er göfugt
og virðingarvert framtak

832
00:57:51,280 --> 00:57:54,600
sem er sjaldgæft í Bandaríkjunum.

833
00:57:54,760 --> 00:58:00,640
Nike styður frjálsar íþróttir vel og
ver gífurlegum fjármunum í þær.

834
00:58:00,800 --> 00:58:05,520
-Sérðu eftir að hafa farið til Nike?
-Nei, alls ekki.

835
00:58:05,680 --> 00:58:08,760
Markaðssetning Nike er snilld

836
00:58:08,920 --> 00:58:12,960
og fyrirtækið lætur líka
gott af sér leiða.

837
00:58:13,120 --> 00:58:18,760
<i>Breaking to</i> var tilraun Nike til að rjúfa
tveggja tíma maraþon-múr

838
00:58:18,920 --> 00:58:25,120
og milljónum dala var varið í það.
Hraðasti maraþonhlaupari heims,

839
00:58:25,280 --> 00:58:29,920
Eliud Kipchoge,
Ólympíumeistarinn frá Kenýa,

840
00:58:30,080 --> 00:58:34,960
átti að hlaupa maraþon
á kappakstursbraut.

841
00:58:35,120 --> 00:58:36,640
NIKE AUGLÝSING 2017

842
00:58:36,800 --> 00:58:41,080
Peningar koma mönnum
ótrúlega langt og <i>Breaking to</i>

843
00:58:41,240 --> 00:58:45,000
kom Nike 26 sekúndum
frá tveggja tíma múrnum.

844
00:58:46,800 --> 00:58:51,680
Nike er þó til staðar og vill sjá
árangur í íþróttinni.

845
00:58:52,840 --> 00:58:55,880
Atvinnumennskan
væri erfið án aðkomu Nike.

846
00:58:56,040 --> 00:58:59,400
Nike fjárfestir í íþróttafólki
og þvingar samkeppnisaðila

847
00:58:59,560 --> 00:59:01,840
til að gera slíkt hið sama.

848
00:59:04,680 --> 00:59:09,360
Nike nýtur þess að taka áhættu
og sjá hve langt þeir komast.

849
00:59:09,520 --> 00:59:14,040
Nike er risi í markaðssetningu
og var að setja á markað nýja skó

850
00:59:14,200 --> 00:59:17,320
með nýjum sólum
sem komu öllum á óvart

851
00:59:17,480 --> 00:59:21,280
og eru allsráðandi um þessar mundir.

852
00:59:21,440 --> 00:59:26,520
<i>Alvarlegar deilur hafa risið upp</i>
<i>út af hlaupaskóm frá Nike</i>

853
00:59:26,680 --> 00:59:28,440
<i>sem heita VaporFlys.</i>

854
00:59:28,600 --> 00:59:32,160
<i>Skóiðinaðurinn er á öðrum endanum</i>
<i>vegna fullyrðinga</i>

855
00:59:32,320 --> 00:59:36,080
<i>um að þeir bæti hlaupaárangur</i>
<i>um fjögur prósent.</i>

856
00:59:36,240 --> 00:59:41,080
Eitt helsta þrætuepli íþróttaheimsins
síðustu fimm árin

857
00:59:41,240 --> 00:59:44,960
voru VaporFly-skórnir
því þeir settu allt á annan endann

858
00:59:45,120 --> 00:59:48,120
og eru gjörólíkir öðrum hlaupaskóm.

859
00:59:48,280 --> 00:59:50,720
Sólarnir eru mjög þykkir.

860
00:59:50,880 --> 00:59:52,680
Svona skór sáust ekki áður.

861
00:59:52,840 --> 00:59:56,920
Skór áttu að vera sem minnstir
til að ná sem mestum hraða.

862
00:59:57,080 --> 00:59:58,440
Eins og að vera skólaus.

863
00:59:58,600 --> 01:00:04,200
Þessi sóli er um 4 sentímetrar.
Nike hannaði frauð

864
01:00:04,360 --> 01:00:07,160
sem er mjög fjaðurmagnað.

865
01:00:07,320 --> 01:00:08,960
Það endurvarpar orku.

866
01:00:09,120 --> 01:00:11,480
Í miðju frauðinu er koltrefjaplata.

867
01:00:11,640 --> 01:00:15,080
Þykkari sóli safnar meiri orku
þegar stigið er á hann.

868
01:00:15,240 --> 01:00:18,240
Þegar maður lyftir fætinum
sendir hann orkuna til baka.

869
01:00:18,400 --> 01:00:20,000
Þykkasti sólinn er bestur.

870
01:00:20,160 --> 01:00:22,720
Þetta er gjörbylting.

871
01:00:22,880 --> 01:00:25,640
Nike er ekki að brjóta reglur
með skónum.

872
01:00:25,800 --> 01:00:27,160
Þeir vinna heimavinnuna.

873
01:00:27,320 --> 01:00:30,000
Íþróttamenn þeirra
njóta góðs af bestu tækninni.

874
01:00:32,080 --> 01:00:36,120
Ég hef aldrei séð jafn góða tíma
í götuhlaupum

875
01:00:36,280 --> 01:00:41,120
um allan heim eins og núna.

876
01:00:41,280 --> 01:00:46,440
<i>Brigid Kosgei slær nýtt heimsmet</i>
<i>í maraþoni.</i>

877
01:00:46,600 --> 01:00:52,120
<i>Fyrsti heimsmeistarinn frá Úganda</i>
<i>í 10 kílómetra hlaupi,</i>

878
01:00:52,280 --> 01:00:54,120
<i>frábært hjá Sifan Hassan.</i>

879
01:00:54,280 --> 01:00:59,000
<i>Frábær tími og án efa mesti hraði</i>
<i>sem við höfum séð á árinu.</i>

880
01:00:59,160 --> 01:01:04,480
Aðgengi að tækni er alltaf til umræðu
þegar nýjungar koma fram.

881
01:01:04,640 --> 01:01:09,160
Það á líka við núna í
tengslum við nýju skóna frá Nike.

882
01:01:09,320 --> 01:01:13,800
Menn héldu að Nike-hlauparar
hefðu einir aðgang að skónum

883
01:01:13,960 --> 01:01:18,240
og þeir sem Nike styrkti ekki
gætu ekki fengið þá.

884
01:01:18,400 --> 01:01:23,000
Tækninni fleygir fram
en ég man ekki eftir því fyrr en 2017

885
01:01:23,160 --> 01:01:28,720
að fólk hafi haldið að skór
gerðu útslagið um hver sigraði.

886
01:01:28,880 --> 01:01:33,200
Ef sigurvegari hleypur í Nike-skóm,
VaporFlys eða AlphaFlys,

887
01:01:33,360 --> 01:01:38,440
lenti hinn þá í öðru sæti
af því hann var ekki í Nike-skóm?

888
01:01:39,840 --> 01:01:41,840
Ef þú hleypur í sandi

889
01:01:42,000 --> 01:01:45,720
hefur þú nægan tíma
til að taka skrefið

890
01:01:45,880 --> 01:01:49,920
en sandurinn gleypir orkuna
og þú nærð ekki miklum hraða.

891
01:01:50,080 --> 01:01:55,240
Hvað gerist ef yfirborðið
sem þú hleypur á, aflagast svolítið

892
01:01:55,400 --> 01:01:57,640
eða gefur eftir þegar þú spyrnir?

893
01:01:57,800 --> 01:02:02,320
Það er málið og afköstin verða
þrjú til fjögur prósent betri.

894
01:02:02,480 --> 01:02:05,920
Hraðinn eykst án þess að áreynsla
eða súrefnisnotkun aukist.

895
01:02:06,080 --> 01:02:10,000
Ég hljóp ekki í skónum
en skoðaði upplýsingar um þá.

896
01:02:10,160 --> 01:02:12,840
Ég var ekki viss um
að þetta væri rétt.

897
01:02:13,000 --> 01:02:16,320
Þegar við gerðum auglýsingamyndina

898
01:02:16,480 --> 01:02:21,400
kom í ljós að þeir voru
að meðaltali 2,7% hagkvæmari.

899
01:02:21,560 --> 01:02:23,600
Þá sá ég að gögnin voru rétt.

900
01:02:25,640 --> 01:02:28,160
Nike vill vinna, hvað sem það kostar.

901
01:02:28,320 --> 01:02:32,680
Er í lagi að sigra í ofurskóm
sem aðrir geta ekki fengið?

902
01:02:34,760 --> 01:02:40,760
Hér er smá saga frá 2016,
úrtökumótinu í Los Angeles.

903
01:02:42,120 --> 01:02:47,800
Ég var þar eins og endranær
og fylgdist með upphitunaræfingum.

904
01:02:47,960 --> 01:02:52,440
Galen Rupp var að hlaupa
í fyrsta sinn.

905
01:02:52,600 --> 01:02:55,600
Ég horfði á hann og skóna hans
og hugsaði:

906
01:02:55,760 --> 01:02:58,400
"Fjandinn sjálfur.
Sá er sjálfsöruggur.

907
01:02:58,560 --> 01:03:03,520
Á ólympísku úrtökumóti í
æfingaskóm." Þetta voru stórir,

908
01:03:03,680 --> 01:03:06,880
þykkir skór sem enginn notaði
á á slíku móti.

909
01:03:07,040 --> 01:03:11,640
Allir voru í eins þröngum, litlum
og léttum skóm og hægt var.

910
01:03:11,800 --> 01:03:17,520
Við vissum ekki hvaða skór
þetta væru.

911
01:03:17,680 --> 01:03:23,360
Við vissum ekki að hann
og tveir aðrir Ólympíuverðlaunahafar

912
01:03:23,520 --> 01:03:28,400
væru í skóm sem voru líklega betri
en nokkrir aðrir skór í heiminum.

913
01:03:28,560 --> 01:03:35,040
Stærsta skósyndin var framin 2016
bandarísku úrtökumóti

914
01:03:35,200 --> 01:03:38,600
fyrir Ólympíuleikana
og síðan í Ríó.

915
01:03:40,080 --> 01:03:43,960
Enginn vissi af þessari tækni,
henni var leynt.

916
01:03:44,120 --> 01:03:46,320
Útlitið var meira að segja gamaldags.

917
01:03:46,480 --> 01:03:50,360
Engir aðrir hlupu í svona skóm.
Það finnst mér ósanngjarnt.

918
01:03:50,520 --> 01:03:53,320
Nú eru komnar reglur
en það er ekki hægt

919
01:03:53,480 --> 01:03:58,560
að endurtaka maraþonið frá 2016.
Þetta var ósanngjarnt.

920
01:03:58,720 --> 01:04:03,520
Kara Gaucher var í 4. sæti 2016
og tvær sem voru framar en hún

921
01:04:03,680 --> 01:04:06,760
voru í svona skóm
en enginn vissi það.

922
01:04:06,920 --> 01:04:09,640
Það voru dulbúnar frumgerðir
af VaporFly.

923
01:04:09,800 --> 01:04:11,280
SKÓR HINDRA ÞÁTTTÖKU Á ÓL

924
01:04:11,440 --> 01:04:14,080
Það er margt sem bendir til þess

925
01:04:14,240 --> 01:04:16,960
að hún hefði komist
í Ólympíulandsliðið.

926
01:04:17,120 --> 01:04:23,120
Munur á tekjum þess sem vinnur
til Ólympíuverðlauna og annarra

927
01:04:23,280 --> 01:04:25,440
skiptir hundruð þúsundum dala

928
01:04:25,600 --> 01:04:27,880
sem dreifðust yfir ferilinn hennar

929
01:04:28,040 --> 01:04:31,520
og áratugina
sem hún heldur fyrirlestra.

930
01:04:31,680 --> 01:04:36,320
<i>Hér er Kara Goucher.</i>
<i>Hún endar í fjórða sæti.</i>

931
01:04:36,480 --> 01:04:40,280
<i>Það munaði litlu</i>
<i>að hún kæmist í liðið.</i>

932
01:04:40,440 --> 01:04:44,240
Nike studdi mig ekki lengur
því ég hafði ljóstrað upp

933
01:04:44,400 --> 01:04:47,520
um Alberto Salazar
og Nike Oregon-verkefnið.

934
01:04:47,680 --> 01:04:50,440
Ég fór frá Nike til Sketchers.

935
01:04:51,440 --> 01:04:56,880
2016 voru í gildi reglur
sem voru brotnar,

936
01:04:57,040 --> 01:04:59,200
um jafnan aðgang allra.

937
01:04:59,360 --> 01:05:02,360
Skór máttu ekki
veita keppanda forskot

938
01:05:02,520 --> 01:05:04,680
sem andstæðingur hafði ekki
aðgang að.

939
01:05:04,840 --> 01:05:07,680
Ég samdi ekki reglurnar
en fór eftir þeim

940
01:05:07,840 --> 01:05:13,560
og notkun á þessum skóm
var brot á reglunum.

941
01:05:13,720 --> 01:05:17,120
Við fréttum af skónum ári seinna,
þá var þegar búið

942
01:05:17,280 --> 01:05:18,800
að nota þá á mótum.

943
01:05:18,960 --> 01:05:21,240
Allir ÓL-verðlaunahafar
í maraþoni karla

944
01:05:21,400 --> 01:05:23,560
voru í þessum frumgerðum.

945
01:05:23,720 --> 01:05:27,320
Jared Ward var sjötti.
Hann var ekki í þessum skóm.

946
01:05:27,480 --> 01:05:32,120
Hvar hefði hann endað, hefði hann
haft aðgang að þessari tækni?

947
01:05:32,280 --> 01:05:35,640
Hjá mér snerist allt um
að hafa skóna sem léttasta,

948
01:05:35,800 --> 01:05:39,440
en þó þannig að þeir þyldu maraþon.

949
01:05:39,600 --> 01:05:41,560
Ég spáði ekki í aðra.

950
01:05:41,720 --> 01:05:46,040
Ég tók ekki eftir því að hlauparar frá
Nike væru í öðruvísi skóm.

951
01:05:46,200 --> 01:05:50,760
Skóframleiðendur láta gjarnan
besta íþróttafólkið

952
01:05:50,920 --> 01:05:55,080
fá frumgerðir af skóm
í kynningarskyni

953
01:05:55,240 --> 01:06:01,560
en þetta virtist aðeins öðruvísi.

954
01:06:01,720 --> 01:06:03,120
RÍÓ 2016

955
01:06:03,280 --> 01:06:07,360
Stóðstu verr að vígi en þeir,
eftir á að hyggja?

956
01:06:07,520 --> 01:06:11,360
Þegar ég lít til baka
finnst mér það, já.

957
01:06:11,520 --> 01:06:17,320
VARÐANDI VAPORFLY 2016:
NIKE VIRÐIR ANDA REGLNA

958
01:06:17,480 --> 01:06:23,040
OG HEFUR ALDREI BROTIÐ ÞÆR
-18. FEBRÚAR 2021

959
01:06:23,200 --> 01:06:26,640
Ég fæ óbragð í munninn
af þessu skómáli

960
01:06:26,800 --> 01:06:29,640
því sagan skiptir máli
í þessari íþrótt,

961
01:06:29,800 --> 01:06:32,080
að geta borið saman árangur
á ólíkum tímum.

962
01:06:33,280 --> 01:06:37,680
Þegar einhver framleiðir eitthvað
sem veldur algjörum straumhvörfum

963
01:06:37,840 --> 01:06:41,360
þarf alþjóða íþróttahreyfingin
að bregðast við

964
01:06:41,520 --> 01:06:44,040
og segja mönnum
að halda að sér höndum

965
01:06:44,200 --> 01:06:46,560
meðan málið er skoðað.

966
01:06:46,720 --> 01:06:50,920
Nike hélt áfram að koma fram
með nýja skó á eftir VaporFly.

967
01:06:51,080 --> 01:06:54,240
Þeir þykknuðu sífellt
og juku hraðann.

968
01:06:54,400 --> 01:06:56,640
Nýir Nike-skór voru tengdir

969
01:06:56,800 --> 01:06:58,120
við góðan árangur.

970
01:06:58,280 --> 01:07:01,880
Fyrir ÓL-úrtökumótið 2020
í maraþoni, stóð til

971
01:07:02,040 --> 01:07:07,360
að frumsýna AlphaFly-skóna frá Nike,
þykkustu og brjálæðislegustu skóna.

972
01:07:07,520 --> 01:07:09,720
Hve þykkbotna
geta hlaupaskór orðið?

973
01:07:09,880 --> 01:07:15,920
Þá setti alþjóðahreyfingin reglur
um hve þykkur skósóli mætti vera.

974
01:07:16,080 --> 01:07:17,920
Hámarkið er fjórir sentímetrar.

975
01:07:18,080 --> 01:07:22,760
Heldurðu ekki að sólinn
á AlphaFly sé 39,5 sentímetrar?

976
01:07:22,920 --> 01:07:27,240
Það var einstaklega heppilegt
að sólinn á AlphaFly frá Nike

977
01:07:27,400 --> 01:07:31,920
væri hálfum millimetra minni
en nýju reglurnar kváðu á um.

978
01:07:32,080 --> 01:07:33,680
Alpha Fly eru löglegir.

979
01:07:34,760 --> 01:07:38,800
Það er athyglisvert að reglurnar
falli svona vel að skónum,

980
01:07:38,960 --> 01:07:42,480
nánast upp á millimetra
og að þá sé allt komið í lag.

981
01:07:42,640 --> 01:07:45,840
Það er ekki í lagi.
Metin eru fallin.

982
01:07:46,000 --> 01:07:47,800
Met eru slegin vikulega.

983
01:07:48,760 --> 01:07:52,480
Við höfðum gaman af
að spá í hvernig reglurnar yrðu.

984
01:07:52,640 --> 01:07:56,000
Þær miðuðu við 40 millimetra
og daginn eftir

985
01:07:56,160 --> 01:07:59,720
komst ég að því að AlphaFly-sólar
væru 39,5 mm.

986
01:07:59,880 --> 01:08:04,200
Var það tilviljun
eða hvað var eiginlega á seyði?

987
01:08:04,360 --> 01:08:07,200
Þetta stenst ekki lyktarprófið.

988
01:08:08,360 --> 01:08:12,400
Samsæriskenningasmiðir spyrja
hvort upplýsingar hafi lekið.

989
01:08:12,560 --> 01:08:16,520
Hafði einhver áhrif á ákvörðunina?
Þetta er athyglisvert.

990
01:08:17,840 --> 01:08:21,640
Annað hvort var þetta
fáránlega hagstætt

991
01:08:21,800 --> 01:08:26,880
eða samantekin ráð.
Við komumst líklega aldrei að því.

992
01:08:28,480 --> 01:08:31,520
Á ÓL-ÚRTÖKUMÓTINU 2020
TÖLDU SUMIR AÐ ALPHAFLY

993
01:08:31,680 --> 01:08:37,600
GÆFI NIKE-FÓLKI FORSKOT
SEM EKKI VÆRI SANNGJARNT.

994
01:08:37,760 --> 01:08:44,760
NIKE GAF ÖLLUM KEPPENDUM
ALPHAFLY SKÓ FYRIR MÓTIÐ.

995
01:08:48,800 --> 01:08:52,640
Það var snjallt hjá Nike
að eyða umræðunni um forréttindi

996
01:08:52,800 --> 01:08:56,160
og koma með vörubílsfarm af skóm
handa öllum þeim

997
01:08:56,320 --> 01:08:58,680
sem vildu þiggja þá.

998
01:09:05,000 --> 01:09:07,080
Hjá rásmarkinu

999
01:09:07,240 --> 01:09:10,360
mátti skoða skófatnað keppenda
en enginn bað um

1000
01:09:10,520 --> 01:09:12,760
að fá að hugsa málið upp á nýtt.

1001
01:09:17,800 --> 01:09:23,360
Yfir 70 prósent keppenda
voru í nýju Nike-skónum.

1002
01:09:26,800 --> 01:09:30,680
<i>Galen Rupp náði þessu í Atlanta.</i>
<i>Hann er á leið til Tókýó.</i>

1003
01:09:30,840 --> 01:09:35,320
<i>Riley fer og líka Abdi Abdirahaman.</i>
<i>Þvílík frammistaða.</i>

1004
01:09:35,480 --> 01:09:39,280
<i>Þetta er besti tími Rileys</i>
<i>við þessar aðstæður.</i>

1005
01:09:39,440 --> 01:09:43,280
Af hverju kaustu Nike-skó
fram yfir aðra á þessum tíma?

1006
01:09:43,440 --> 01:09:44,800
Þeir voru ókeypis.

1007
01:09:46,400 --> 01:09:49,400
AlphaFlys-skór voru gefins
og þeir voru sagðir

1008
01:09:49,560 --> 01:09:52,400
tæknilega bestu skórnir.

1009
01:09:52,560 --> 01:09:55,000
Af hverju ekki að þiggja þá?

1010
01:10:00,160 --> 01:10:04,000
Hefðir þú komist í ÓL-liðið
í öðrum skóm?

1011
01:10:05,280 --> 01:10:09,640
Því er erfitt að svara.
Ég veit það ekki.

1012
01:10:09,800 --> 01:10:15,760
Það væri auðvelt að svara játandi
en ég veit það ekki.

1013
01:10:16,800 --> 01:10:20,440
Þessir skór höfðu gífurleg áhrif.

1014
01:10:20,600 --> 01:10:24,160
Þeim var líkt við tæknilegt lyf.

1015
01:10:24,320 --> 01:10:29,600
Almennt viðhorf er að það
sem ekki er bannað sé leyfileg.

1016
01:10:29,760 --> 01:10:35,200
Það er alltaf leitað að glufum
sem reglur ná ekki yfir

1017
01:10:35,360 --> 01:10:40,400
eða leiðum til að sniðganga þær.

1018
01:10:42,040 --> 01:10:44,600
Þetta höfum við séð í golfklúbbum.

1019
01:10:44,760 --> 01:10:47,600
Það þarf að lengja brautir
og breyta ýmsu.

1020
01:10:47,760 --> 01:10:49,080
Tennisspaðar eru betri.

1021
01:10:49,240 --> 01:10:53,320
Sjáðu úthaldsíþróttir,
reiðhjólin, skautana,

1022
01:10:53,480 --> 01:10:56,280
tæknilegan sundfatnað
og nú hlaupaskó.

1023
01:10:56,440 --> 01:10:59,720
Hjólin og skautarnir
bæta árangur íþróttafólksins.

1024
01:10:59,880 --> 01:11:03,160
Hvað gerir sundfatnaðurinn
í lauginni?

1025
01:11:03,320 --> 01:11:05,760
Bætir árangur.
Þessir skór auka það

1026
01:11:05,920 --> 01:11:08,160
sem er kallað hlaupahagkvæmni.

1027
01:11:10,040 --> 01:11:15,920
Í íþróttum, hvort sem það er golf,
Formula1, NASCAR, hafnabolti,

1028
01:11:16,080 --> 01:11:20,720
krikket eða frjálsar íþróttir,
eru settar reglur svo hægt sé

1029
01:11:20,880 --> 01:11:25,800
að fylgjast með og takmarka tæknina
og keppa á jafnræðisgrundvelli.

1030
01:11:27,120 --> 01:11:31,160
Ef á að viðurkenna met sem eru sett
í þessum skóm, þarf reglur.

1031
01:11:32,920 --> 01:11:36,480
Það er ekki hægt að bera saman
tíma núna og áður fyrr.

1032
01:11:36,640 --> 01:11:39,120
Ekki einu sinni íþróttamenn.

1033
01:11:39,280 --> 01:11:43,320
Það er dapurlegt að vita ekki
um hvað þetta snýst núorðið.

1034
01:11:43,480 --> 01:11:47,440
Við vitum ekki hvort sá besti sigrar.

1035
01:11:55,120 --> 01:11:57,760
Það eru breyttir tímar
og fjöldi fólks

1036
01:11:57,920 --> 01:12:02,920
bætir persónuleg met
um tvær mínútur í 250 dala skóm.

1037
01:12:03,080 --> 01:12:09,760
Það er svívirðilegra en nokkuð
sem Salazar er ásakaður um.

1038
01:12:09,920 --> 01:12:15,200
Þú kaupir skó með koltrefjaplötu
og ert allt í einu farinn að hlaupa

1039
01:12:15,360 --> 01:12:18,720
á tíma sem var óhugsandi
fyrir tveimur árum.

1040
01:12:21,000 --> 01:12:27,800
Við þjösnumst á manni sem dansar
á mörkum sem við settum

1041
01:12:27,960 --> 01:12:33,920
en þykjumst ekki sjá þá sem stökkva
yfir mörkin í sérstökum skóm.

1042
01:12:37,080 --> 01:12:39,680
Salazar var vægðarlaus á toppnum

1043
01:12:39,840 --> 01:12:45,720
og sumum fannst það rangt

1044
01:12:45,880 --> 01:12:49,360
en við erum að ræða um grátt svæði.

1045
01:12:53,520 --> 01:12:59,840
Það má segja að Alberto
sé holdgervingur Nike að sumu leyti.

1046
01:13:02,240 --> 01:13:07,120
Alberto var andlit Nike
á upphafsdögum fyrirtækisins.

1047
01:13:09,000 --> 01:13:12,400
Alberto vildi endurvekja
gullaldartíma hlaupara.

1048
01:13:12,560 --> 01:13:15,840
Nike var á sömu skoðun
en Nike vildi líka

1049
01:13:16,000 --> 01:13:17,840
verða stærst á heimsvísu.

1050
01:13:18,000 --> 01:13:19,480
DIRFSKA OG VEGSEMD

1051
01:13:19,640 --> 01:13:22,000
Nike vill fyrir alla muni vinna.

1052
01:13:22,160 --> 01:13:24,760
Annað sætið er tapsæti.

1053
01:13:24,920 --> 01:13:29,560
Nike hefur gert margt gott
fyrir íþróttina, ekki misskilja mig,

1054
01:13:29,720 --> 01:13:32,480
en hvar er siðgæðið?

1055
01:13:37,840 --> 01:13:42,960
Ég skil ekki af hverju Nike
stendur svona þétt með Alberto.

1056
01:13:43,120 --> 01:13:47,160
Við höfum séð hversu harkalega
hefur verið tekið á mönnum

1057
01:13:47,320 --> 01:13:50,280
með lyfjabanni og þessháttar.

1058
01:13:50,440 --> 01:13:54,280
Nike stóð lengi
með Lance Armstrong.

1059
01:13:54,440 --> 01:14:00,720
Mér finnst þetta undarlegt
og ég skil ekki hversu ofursterk

1060
01:14:00,880 --> 01:14:04,120
þessi sambönd eru
en þau virðast nær órjúfanleg.

1061
01:14:06,040 --> 01:14:10,680
Nike hefur margar góðar ástæður
til að standa með Alberto.

1062
01:14:10,840 --> 01:14:16,760
Þeim finnst lyfjasambandið
hafa vegið ómaklega að honum

1063
01:14:16,920 --> 01:14:22,600
og stuðningurinn er mikilvægur
bæði fyrir Alberto og Nike.

1064
01:14:22,760 --> 01:14:24,080
NIKE

1065
01:14:24,240 --> 01:14:30,440
Alberto myndi aldrei
sverta orðspor Phils Knight eða Nike.

1066
01:14:30,600 --> 01:14:36,480
Nike veit það og treystir honum,
þeir styðja hann eins lengi og þarf.

1067
01:14:39,600 --> 01:14:45,720
Nike vill hreinsa mannorð.
Ég vil fá sannleikann á yfirborðið.

1068
01:14:45,880 --> 01:14:48,800
Nike er búið að eyða milljónum dala

1069
01:14:48,960 --> 01:14:52,000
í lögfræðikostnað og þess háttar.

1070
01:14:52,160 --> 01:14:56,280
Hjarta Nike slær með hlaupaíþróttum,
það er Phil Knight.

1071
01:14:56,440 --> 01:14:58,480
Þar er vagga fyrirtækisins.

1072
01:15:02,720 --> 01:15:05,520
Nike er búið að leggja mikið undir

1073
01:15:05,680 --> 01:15:08,320
og vill ekki pakka saman.

1074
01:15:08,480 --> 01:15:10,680
Teningunum er kastað

1075
01:15:12,640 --> 01:15:14,680
Nike veðjar miklu á Alberto.

1076
01:15:14,840 --> 01:15:18,480
Þeir gera það líklega til enda.

1077
01:15:18,640 --> 01:15:21,520
Ég veit ekki
hvernig Salazar-sagan endar.

1078
01:15:21,680 --> 01:15:24,880
Kannski vinnur hann eftir áfrýjun
og kemur aftur.

1079
01:15:25,040 --> 01:15:28,520
Aðför lyfjasambandsins
að Salazar er vísbending

1080
01:15:28,680 --> 01:15:32,360
um að menn vilji kannski
taka þessi mál fastari tökum.

1081
01:15:32,520 --> 01:15:35,640
Að ekki sé nóg að fara að lögum

1082
01:15:35,800 --> 01:15:40,720
heldur sé ætlast til framkomu
sem er svipuð því sem við viljum sjá

1083
01:15:40,880 --> 01:15:42,720
í íþróttum barnanna okkar.

1084
01:15:46,640 --> 01:15:50,520
Þetta eru tveir mjög ólíkir heimar.

1085
01:15:50,680 --> 01:15:56,680
Það eru þeir sem skara fram úr
og svo allir hinir.

1086
01:15:56,840 --> 01:15:59,800
Vandræðin varðandi Salazar
eru vegna þess

1087
01:15:59,960 --> 01:16:03,640
að afreksfólk þarf
að fylgja reglum allra hinna.

1088
01:16:03,800 --> 01:16:09,560
Afreksfólkið er í slæmum málum.

1089
01:16:09,720 --> 01:16:15,440
Það er fáránlega óheilbrigt
að hlaupa 300 kílómetra á viku

1090
01:16:15,600 --> 01:16:20,520
og það eykur ýmsa líkamlega kvilla
sem eru kannski ekki sýnilegir.

1091
01:16:21,480 --> 01:16:25,320
Það sést á lyfseðilsskyldu lyfjunum
sem fólk þarf að taka.

1092
01:16:25,480 --> 01:16:29,440
Ekki við, enda hlaupum við ekki
300 km í kappi við klukkuna.

1093
01:16:29,600 --> 01:16:31,440
Þeir misbjóða líkamanum

1094
01:16:31,600 --> 01:16:34,760
og Guð einn veit hvað þeir þurfa.

1095
01:16:34,920 --> 01:16:38,240
Við viðurkennum ekki
að það er ekki lengur 1954

1096
01:16:38,400 --> 01:16:42,200
þegar Roger Bannister
hljóp í hádegishléinu sínu.

1097
01:16:42,360 --> 01:16:48,800
Þetta fólk æfir allan daginn
og það eyðileggur sig á þessu.

1098
01:16:48,960 --> 01:16:53,360
Ef við viljum ekki
uppræta afreksíþróttir, þurfum við

1099
01:16:53,520 --> 01:16:56,240
að sætta okkur við ýmislegt
á toppnum,

1100
01:16:56,400 --> 01:16:58,560
sem okkur finnst óþægilegt.

1101
01:17:02,000 --> 01:17:05,160
Þannig eru samningar óbeint
við Nike.

1102
01:17:05,320 --> 01:17:10,720
Þeir tengja vörumerki sitt
við besta mögulega árangur.

1103
01:17:10,880 --> 01:17:14,400
Styðja þeir margar NBA-stjörnur
eins og Lebron James?

1104
01:17:14,560 --> 01:17:17,200
Það er ástæða fyrir því.

1105
01:17:17,360 --> 01:17:20,000
Lagði Tiger Woods allt í sölurnar?
Já.

1106
01:17:20,160 --> 01:17:22,160
Gerði Michael Jordan það?
Já.

1107
01:17:22,320 --> 01:17:25,000
Enginn er neyddur
til samninga við Nike.

1108
01:17:25,160 --> 01:17:29,240
Það eru fleiri valkostir
fyrir þá sem það vilja.

1109
01:17:32,560 --> 01:17:36,800
Ef svo ólíklega og heppilega
hefði viljað til

1110
01:17:36,960 --> 01:17:41,200
að ég væri hlaupari
á heimsmælikvarða,

1111
01:17:41,360 --> 01:17:45,480
nýkominn úr skóla, 21 árs
og mér hefði staðið til boða

1112
01:17:45,640 --> 01:17:48,640
að fara í Nike Oregon,
hefði ég slegið til?

1113
01:17:49,960 --> 01:17:52,280
Ég myndi spyrja mig að því.

1114
01:17:52,440 --> 01:17:54,400
Ég hefði látið á það reyna

1115
01:17:55,680 --> 01:17:58,880
en hefði líka vitað
út í hvað ég var að fara.

1116
01:18:11,120 --> 01:18:15,320
NIKE OG ALBERTO SALAZAR
NEITUÐU AÐ KOMA FRAM

1117
01:18:15,480 --> 01:18:19,160
Í ÞESSARI MYND.
NIKE SENDI SKRIFLEGT SVAR

1118
01:18:19,320 --> 01:18:23,440
OG SAGÐI AÐ UMFJÖLLUN
UM MÁLIÐ VÆRI RÖNG,

1119
01:18:23,600 --> 01:18:27,360
NIKE STYDDI ALBERTO
Í AÐ ÁFRÝJA MÁLINU

1120
01:18:27,520 --> 01:18:34,120
OG ÓSKAÐI HONUM
RÉTTLÁTRAR MÁLSMEÐFERÐAR.

1121
01:20:22,840 --> 01:20:26,840
Þýðandi: Brynja Tomer
Yiuno-SDI Group



